Lífið

Gengu í hjónaband eftir tíu ára samband

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
David Burtka og Neil Patrick Harris.
David Burtka og Neil Patrick Harris. Vísir/Getty
How I met your mother leikarinn Neil Patrick Harris gekk að eiga unnusta sinn til tíu ára, David Burtka, á laugardag.

Athöfnin fór fram á Ítalíu og voru aðeins nánustu vinir og fjölskylda viðstödd.

Brúðgumarnir klæddust báðir sérhönnuðum smókingfötum frá Tom Ford.

Saman eiga þeir tvíburana Harper Grace og Gideon Scott sem tóku virkan þátt í athöfn feðra sinna.

Hápunktur veislunnar var þegar Sir Elton John tók lagið við mikinn fögnuð viðstaddra. 



Harris birti gleðitíðindin á twitter síðu sinni í gær með mynd af þeim hjónum úr athöfninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×