Lífið

Hálfnakin í tískupartý

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Miley Cyrus heldur áfram að hneyksla
Miley Cyrus heldur áfram að hneyksla Vísir/Getty
Söngkonan Miley Cyrus stal senunni í gær þegar hún mætti í leynilegt eftirpartý hjá fatahönnuðinum Alexander Wang í New York, sem haldið var í tilefni sýningar hans á tískuvikunni.

Miley, sem þekkt er fyrir ögrandi hegðun og áhættur í fatavali, mætti í partýið í buxum einum fata með pallíettuskreytt skraut yfir geirvörtunum. Við þetta var hún með sólgleraugu skreytt með sælgæti.

Birti hún myndir og myndbönd af sér í partýinu á instagram síðu sinni og af þeim að dæma virðist hún hafa skemmt sér hressilega.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×