Sport

Gunnar í aðalhlutverki í nýjustu auglýsingu UFC | Myndband

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Gunnar, Niklas Backström og Illir Latifi í Stokkhólmi á dögunum.
Gunnar, Niklas Backström og Illir Latifi í Stokkhólmi á dögunum. Vísir/Getty
UFC birti í dag nýja auglýsingu fyrir bardagakvöldið í Stokkhólmi þann 4. október næstkomandi en bardagi Gunnars Nelson og Rick Story verður aðalbardagi kvöldsins.

Stutt er síðan Gunnar barðist í í Dyflinni á Írlandi sem var annar af tveimur aðalbardögum kvöldsins, en nú verður hann stjarnan. Því fylgir mun meiri athygli og auknar tekjur.

Rick Story, mótherji hans, er aðeins annar af tveimur mönnum sem unnið hafa núverandi meistara, Johnny Hendricks og má því búast við spennandi bardaga þann 4. október næstkomandi.

Auglýsingu UFC má sjá hér fyrir neðan.



MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×