Baneitraðir bræður á Blásteini Jakob Bjarnar skrifar 18. september 2014 14:22 Bræðurnir eru eldklárir og unnu sér inn 15 bjóra. Með þeim á myndinni er spyrillinn Raggi sót, glaðbeittur að vanda. J Brynjólfsson „
Ótrúlega fróðir og grjótharðir, þeir bræður,“ segir Ragnar Gunnarsson, alías Raggi Sót, sem hafði veg og vanda að spurningakeppninni sem haldin er reglulega á Blásteini í samstarfi við vin sinn og félaga: Jón Hauk Brynjólfsson, en saman kallar tvíeykið sig J Brynjólfsson og Sót. Ragnar, sem þekktur er meðal annars sem forsöngvari hinna fornfrægu Skriðjökla frá Akureyri, segir að umfangsmikil vitneskja þeirra bræðra hafi komið sér í opna skjöldu, en það voru sem sagt þeir bræður Brynjar Níelsson alþingismaður og Gústaf Níelsson framkvæmdastjóri, sem fóru með sigur af hólmi í keppni sem haldin var á laugardaginn síðasta. „Þetta eru náttúrlega langskólagengnir menn og bókaormar. Það eru kannski ekkert allir sammála mér um að hann Gústi sé voðalega klár náungi, það verður nú að viðurkennast. Ég held að Brynjar sé þokkalega vel gefinn. Baneitraðir bræðurnir, jájá...“ segir Raggi.Skorradals-Álfurinn í öðru sæti Raggi kemur því að í óspurðum fréttum að næsta keppni verði laugardaginn 4. október. „Ég veit ekki hvort er uppselt. Slík er ásóknin í þetta. Frábær verðlaun og þess má geta að í öðru sæti varð hann Eyjólfur vinur minn Engilbertsson frá Vatnsenda í Skorradal. Oft nefndur Skorradalsálfurinn.“ Til stóð að 1. verðlaun gæfu heila 30 bjóra í verðlaun en þá kom jafnaðarmaðurinn upp í Ragnari. „Já, þetta áttu að vera 30 bjórar, bjórkort sem Blásteinn gefur sérstaklega út, en þar sem þeir eru nú báðir í fullri vinnu, Brynjar alþingismaður og lögmaður og á skítnóg af peningum og Gústi náttúrlega framkvæmdastjóri hjá Iðnaðarþrifum Bergþóru, stöndugir og vel efnaðir ákvað ég að hafa þetta bara 15 bjóra í 1. verðlaun en 30 í önnur verðlaun. Því Skorradalsálfurinn er bara á einhverjum gamlingjabótum sem hrökkva engan veginn til hjá alvöru drykkjumönnum.“Fátt eitt stóð í bræðrunum gáfuðu Svo virðist sem ekki fari mikið fyrir kvenfólki í þessu samhengi og Ragnar segir það rétt, en þá aðeins akkúrat þar og þá. „Það hefur nú verið meira, sennilega hefur verið Kvennakvöld hjá Fylki þetta kvöldið, en stundum verður ekki þverfótað fyrir kvenfólki þarna.“ Raggi bar upp hinar erfiðustu spurningar en þær stóðu ekki í bræðrunum gáfuðu. Spyrillinn man þó eftir einni spurningu sem þeir götuðu á, af hverju læðast Hafnfirðingar fram hjá apótekinu? „Til að vekja ekki svefnpillurnar. Þetta átti nú að vera auðveldasta spurningin en líklega lærir þú þetta ekki í Háskólanum.“
Mest lesið Einhleypan: Vandræðalegt þegar þeir eru giftir eða í sambandi Lífið Óskarsverðlaunahafi óléttur í annað sinn Lífið Lét sauma bangsa úr fötum látins sonar síns Lífið „Undrabarn“ keppir á undanþágu og tekur pabba í kennslustund Lífið Birta Líf og Gunnar eiga von á dóttur Lífið Er alltaf hrædd Lífið „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ Tónlist Sjóðheitar og einhleypar inn í haustið Lífið Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Lífið Frestar tónleikaferðalagi vegna andláts Payne Lífið Fleiri fréttir Óskarsverðlaunahafi óléttur í annað sinn Einhleypan: Vandræðalegt þegar þeir eru giftir eða í sambandi Bein útsending: Bingó Blökastsins Birta Líf og Gunnar eiga von á dóttur Frestar tónleikaferðalagi vegna andláts Payne Lét sauma bangsa úr fötum látins sonar síns Krakkatían: Flugfélög, landafræði og krakkalög „Undrabarn“ keppir á undanþágu og tekur pabba í kennslustund Flautað á dúfurnar á Eyrarbakka og þær koma heim Faðir Payne las minningarorð og þakkaði aðdáendum Fréttatía vikunnar: Pólitík, andlát og bíó María Thelma og Steinar Thors héldu brúðkaup ársins Cheryl kvartar yfir fjölmiðlaumfjöllun um Liam Payne Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Litfögur íbúð með mikinn karakter Haustförðunin sem hefur slegið í gegn á TikTok Þetta eru höfundar Áramótaskaupsins 2024 Níu ára og notar hestastudda sálfræðimeðferð til að komast yfir hamfarirnar Rekinn af útgáfunni stuttu fyrir andlátið Bingó í beinni á sunnudag Er alltaf hrædd One Direction sendir frá sér yfirlýsingu: „Við erum algjörlega miður okkar“ Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Frumkvöðull í Detroit teknói í Gamla bíó í nóvember Þorvaldur Davíð og Hjálmar Örn í eina sæng Fjölskylda Liam Payne biður um andrými Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne Sjá meira