Lífið

Clooney leikur í Downton Abbey

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
George Clooney er ekki bara glæsilegur, heldur gerir líka góðverk.
George Clooney er ekki bara glæsilegur, heldur gerir líka góðverk. Vísir/Getty
Nú geta aðdáendur bresku þáttanna Downton Abbey glaðst, því staðfest hefur verið að stórleikarinn George Clooney muni koma fram í þætti af nýju seríunni sem frumsýnd verður ytra í lok september.

Þátturinn sem Clooney leikur í verður sýndur um jólin og er hluti af góðgerðarstarfsemi sem sjónvarpsstöðin ITV stendur fyrir, en hann var skrifaður sérstaklega fyrir þetta tilefni. 

Clooney er að sögn mikill aðdánadi þáttanna og góður vinur Hugh Bonneville sem fer með hlutverk Lord Robert Crawley.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×