Lífið

Rosanne-stjarna ólétt

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Sara, t.v. og Linda, t.h.
Sara, t.v. og Linda, t.h. Getty
Sara Gilbert, sem flestir Íslendingar ættu að þekkja sem dóttur Rosanne úr samnefndum sjónvarpsþáttum, er ólétt. Gilbert er líka einn þáttastjórnenda spjallþáttarins The Talk en þar tilkynnti hún einmitt um óléttuna.

Í þessari viku taka stjórnendur þáttarins við áskorunum. „Að horfast í augun við óttann“ var einn hluti af áskorununum og hefði Sara þurft að láta brjóta múrstein á maganum sínum. „Ég trúi virkilega á það að horfast í augu við óttann sinn, en ég get ekki gert áskorunina þar sem ég er ólétt,“ sagði hún í þættinum.

Eiginkona Söru er Linda Perry úr hljómsveitinni 4 Non Blondes. Sara, 39 ára, giftist Perry, 49 ára í mars. Þetta verður fyrsta barnið þeirra saman en Gilbert á þegar tvö börn úr fyrra sambandi.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×