Lífið

Kardashian systir ein á ný

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Khloé og French meðan allt lék í lyndi
Khloé og French meðan allt lék í lyndi Vísir/Getty
Eftir átta mánaða samband hafa Khloé Kardashian og French Montana ákeðið að hvort í sína áttina. 

Haft er eftir heimildamanni að Khloé hafi fengið nóg af hegðun rapparans en hún sagði hann þurfandi og haldinn þráhyggju.

Hún hafi því reynt að fjarlægjast hann og á endanum fengið sig fullsadda af honum. 

Sögusagnir voru um að rapparinn hafi verið að nota Khloé og það hversu þekkt hún væri til þess að koma sér og tónlist sinni á framfæri. 

Khloé var áður gift NBA leikmanninum Lamar Odum, en þau gengu í hjónaband eftir aðeins mánaðarkynni árið 2009.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×