Lífið

"Það var hans ósk að hún myndi fá hringana okkar beggja"

Ellý Ármanns skrifar
Bergdís Ingibergsdóttir setti mynd af trúlofunarhringnum sínum á Facebooksíðuna sína í von um að finna nánast eins hring barnsföður síns sem er látinn en það var ósk hans og hennar að bræða hringana þeirra saman í einn hring fyrir dóttur þeirra.

Féll frá í desember - hringurinn finnst hvergi

„Við vorum ekki gift eða saman þegar hann féll frá en við skildum fyrir tíu árum. Þetta var pabbi dóttur minnar, sem er tíu ára í dag, en við vorum trúlofuð þegar hún fæddist. Hann lést í desember og ég held að hringurinn hans hafi verið týndur áður en hann dó," útskýrir Bergdís þegar við höfum samband við hana til að hjálpa henni að finna hringinn hans Stebba.

„Ég vil endilega koma hringnum í réttar hendur, það er til dóttur okkar. Það var hans ósk að hún myndi fá hringana okkar beggja en við ætluðum alltaf að láta bræða þá saman og gefa henni í fermingargjöf. Það var alltaf ætlunin hjá okkur."

Vongóð um að hringurinn finnist

„Hringurinn er alveg eins og hringurinn á myndinni. Það er letur utan á hringnum hans nema enginn demantur eins og á mínum en þeir eru alveg eins að aftan. Letrið sjálft er það sama utan á hringunum en þar eru nöfnin okkar grafin utan á," segir hún. 

Ef einhver annar er með hringinn eða er að nota hann þá eru nöfnin okkar utan á honum. Það getur auðvitað verið að einhver hafi selt hringinn hans eða látið bræða hann en ég er samt vongóð og ákvað því að fara þessa leið. Ef ég finn ekki hring föður hennar þá ætla ég að gefa henni minn hring," bætir Bergdís við vongóð.

Hringur Bergdísar er með demanti eins og sjá má hér.
Nú er Stebbi fallinn frá og hringurinn hans er týndur

Þennan texta skrifaði Bergdís með myndinni hér til hliðar. 

„Kæru vinir. Á þessari mynd er gamall trúlofunarhringur sem ég átti þegar ég og Stebbi vorum trúlofuð.  Nú er Stebbi fallinn frá og hringurinn hans er týndur, en ætlun okkar var alltaf að láta bræða þá saman og gefa Ölmu Rán dóttur okkar fallegan skartgrip, sameinaðan úr hringunum okkar.

Hringurinn hans er alveg eins og þessi á myndinni, án demantsins. Utan á hringnum er íslenskt höfðaletur, en það eru nöfnin okkar. Innan í hringnum stendur Þín Bergdís. Endilega hjálpið mér að deila þessu. Og vonandi kemst hann í réttar hendur."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×