Þýskur ljósmyndari leitar að konu og starfi á Íslandi Bjarki Ármannsson skrifar 29. september 2014 21:40 Þjóðverjinn Frank Tschöpe hefur margoft heimsótt Ísland og hyggst flytja hingað næsta sumar.
Í skilaboðum sem ganga nú manna á milli á Facebook óskar þýski ljósmyndarinn Frank Tschöpe eftir hjálp við að finna vinnu, heimili og kærustu á Íslandi. Frank hyggst flytja hingað til lands næsta sumar en hann hefur heillast af fólkinu, landslaginu og meira að segja veðrinu á Íslandi í heimsóknum sínum hingað til lands.Vill vinna sem ljósmyndari „Ég hef komið til Íslands svona fimmtán sinnum,“ segir Frank, sem býr um þessar mundir í Sviss og vinnur í banka. „Ég elska náttúruna, hún er svo afskekkt. Ég kann líka betur við fólkið á Íslandi heldur en hér í Sviss. Hugarfarið okkar er svipað.“ Frank er mikill áhugamaður um útivist og ferðalög. Hann hefur farið á Everest-fjall og hyggst heimsækja Suðurskautslandið nú í vetur. Hann segir samt að Ísland sé eftirlætislandið hans, en hér á landi hefur hann meðal annars gengið Laugaveginn margoft, klifið Hvannadalshnjúk og þrætt Hornstrandir. „Mig langar að vinna sem ljósmyndari á Íslandi. Ég er fyrst og fremst í landslagsmyndum en ég gæti líka boðið upp á andlitsmyndir og dýramyndir. Svo get ég verið leiðsögumaður, ég hef oft farið í göngur og þekki margar gönguleiðir mjög vel.“Leitar íslenskrar konu Í skilaboðum Franks, sem hann sendi fyrir viku á um fimmtíu vini sína, lýsir hann yfir áhuga á því að finna íbúð í Reykjavík, helst í grennd við Laugardalinn. Hann segist einnig vera í leit að aðlaðandi íslenskri konu með svipuð áhugamál. „Það verður væntanlega erfiðast,“ viðurkennir hann. „En ég ætla að búa á Íslandi næstu árin og þá þætti mér best að búa með íslenskri konu. Það væri líka gott upp á að læra tungumálið.“ Hann segist þegar vera búinn að fá nokkur svör, en hlakkar til að fara yfir þau þegar nær dregur. Ljósmyndir úr ferðum Franks um Ísland má skoða á síðu hans. Bréf Franks í heild sinni má lesa hér:Góðan daginn!Ég heiti Frank frá Þýskalandi, og stefni á að flytja til Íslands í júní 2015! Gætir þú ef til vill hjálpað mér með eftirtalin atriði:1. Job I can offer you the following: a) Hiking guide and Photography Tours (for german and english speaking tourists) b) Portraits and Animal photography (I own the best Zeiss lenses for this! 85mm 1.4 to come soon!) c) Calendars on Iceland (it would be nice to sell them in the bookstores) d) Risk Control for banks and Web-Design (only English), actually I studied mathematics!2. HomeI am looking for a nice home in Reykjavik, districts 104, 105 would be my favorite choice, as close to the Laugadalur swimming pool, size 40-100m2, <20mio Kr. if for sale, but I am also interested in renting one!3. LoveHere I look for an attractive (!) woman, 28y-40y, with similar mindset than me, e.g. very sportive, she should like outdoor and nature, hiking and photography, wind- and weather-proof, maybe she even likes camping in the wilderness! If she likes cats, polar foxes and horses, that would be also fine.If you know a friend of you, who can help me on the above topics, I would very appreciate if you could share this ad with him/her! Just copy/paste and forward the message!You will find infos to my person and beautiful pictures from Iceland (Hornstrandir and Laugavegur) on my websitewww.franktschoepe.comVinsamlegast deilið með vinum ykkar á Íslandi!Kærar þakkir fyrir tíma ykkar og áheyrn.Bestu kveðjurFrankPortfoliowww.franktschoepe.com
Mest lesið Lét sauma bangsa úr fötum látins sonar síns Lífið „Undrabarn“ keppir á undanþágu og tekur pabba í kennslustund Lífið Einhleypan: Vandræðalegt þegar þeir eru giftir eða í sambandi Lífið Bein útsending: Bingó Blökastsins Lífið Birta Líf og Gunnar eiga von á dóttur Lífið Frestar tónleikaferðalagi vegna andláts Payne Lífið Krakkatían: Flugfélög, landafræði og krakkalög Lífið María Thelma og Steinar Thors héldu brúðkaup ársins Lífið Er alltaf hrædd Lífið Flautað á dúfurnar á Eyrarbakka og þær koma heim Lífið Fleiri fréttir Einhleypan: Vandræðalegt þegar þeir eru giftir eða í sambandi Bein útsending: Bingó Blökastsins Birta Líf og Gunnar eiga von á dóttur Frestar tónleikaferðalagi vegna andláts Payne Lét sauma bangsa úr fötum látins sonar síns Krakkatían: Flugfélög, landafræði og krakkalög „Undrabarn“ keppir á undanþágu og tekur pabba í kennslustund Flautað á dúfurnar á Eyrarbakka og þær koma heim Faðir Payne las minningarorð og þakkaði aðdáendum Fréttatía vikunnar: Pólitík, andlát og bíó María Thelma og Steinar Thors héldu brúðkaup ársins Cheryl kvartar yfir fjölmiðlaumfjöllun um Liam Payne Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Litfögur íbúð með mikinn karakter Haustförðunin sem hefur slegið í gegn á TikTok Þetta eru höfundar Áramótaskaupsins 2024 Níu ára og notar hestastudda sálfræðimeðferð til að komast yfir hamfarirnar Rekinn af útgáfunni stuttu fyrir andlátið Bingó í beinni á sunnudag Er alltaf hrædd One Direction sendir frá sér yfirlýsingu: „Við erum algjörlega miður okkar“ Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Frumkvöðull í Detroit teknói í Gamla bíó í nóvember Þorvaldur Davíð og Hjálmar Örn í eina sæng Fjölskylda Liam Payne biður um andrými Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne Loka Sæbraut á laugardag vegna kvikmyndatöku Sjá meira