Lífið

Kann ekki að segja orðið "penguins“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikarinn Benedict Cumberbatch er mjög hæfileikaríkur maður en eitt á hann þó í basli með - að bera fram enska orðið yfir mörgæsir, eða penguins.

Glöggur áhorfandi heimildarmyndarinnar South Pacific sem sýnd var á BBC árið 2012 hjó eftir þessu en Benedict las inná myndina. Áhorfandinn tók sig til og klippti meðfylgjandi myndband saman þar sem sést hvernig Benedict reynir að bera fram orðið með spaugilegum hætti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×