Lífið

Sendi óvart rassamynd til tengdó

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/Getty
Sjónvarpskonan Kelly Ripa sagði frá því í viðtali við David Letterman í vikunni að hún hafi eitt sinn óvart sent mynd af afturenda sínum til tengdaforeldra sinna. Myndin var ansi djörf en hún var ætluð eiginmanni Kelly, Mark Consuelos, sem var í ferðalagi.

„Ég sendi honum sæta, fallega rassa-„selfie“ á nærfötunum. Þetta er í eina skiptið sem ég hef sent mynd sem sýnir mig nánast nakta,“ sagði Kelly við David.

„Belfie“-myndin eins og Kelly kallar hana fór hins vegar til foreldra Marks sem sendu henni tölvupóst út af myndinni og slógu á létta strengi.

„Þau skrifuðu: Kæra Kelly, við erum svo stolt af þér. Þessir líkamsræktartímar borga sig,“ bætti Kelly við.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×