Lífið

„Var þetta ekki áskorun hjá honum?“

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Hafliði hefur hlaðið myndbandinu upp á YouTube, líkt og Óli Geir.
Hafliði hefur hlaðið myndbandinu upp á YouTube, líkt og Óli Geir.
„Ég ákvað að taka áskoruninni sem Óli Geir setti í gang með videoinu úr ræktinni,“ segir í lýsingu með myndbandi sem Hafliði Breiðfjörð, framkvæmdastjóri Fotbolti.net, hefur hlaðið upp á YouTube. Þar má sjá myndband sem er nokkuð líkt því sem Óli Geir setti nýverið á vefinn.

Í samtali við Vísi sagði Óli Geir, einkaþjálfari og plötusnúður, myndband sitt ætlað að sýna fólki að hann haldi áfram sama hvað á reynir. „Í þessu myndbandi er líf mitt í hnotskurn og fólk getur séð þarna í hverju ég hef lent en ég held áfram sama hvað verður á vegi mínum,“ sagði hann.

Hafliði segist ekki vera í sömu pælingum. „Var þetta ekki áskorun hjá honum?“ spyr Hafliði. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×