Lífið

Barn númer tvö hjá Snooki

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Jionni, Lorenzo og Snooki.
Jionni, Lorenzo og Snooki. vísir/getty
Raunveruleikastjarnan Nicole „Snooki“ Polizzi og unnusti hennar, Jionni LaValle, eignuðust dóttur í dag sem hefur hlotið nafnið Giovanna Marie LaValle.

Snooki tilkynnti þetta á Twitter-síðu sinni fyrr í dag.

Snooki og Jionni eiga fyrir soninn Lorenzo sem kom í heiminn í ágúst árið 2012. 

Jionni bað Snooki snemma árs 2012 en ekki er ljóst hvenær þau ætla að ganga í það heilaga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×