Þingmaður Vinstri grænna fellst á veg um Teigsskóg Kristján Már Unnarsson skrifar 26. september 2014 14:00 Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður VG. Vísir/Daníel.
Þingmaður Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi, Lilja Rafney Magnúsdóttir, segir nýja tillögu Vegagerðarinnar um að Vestfjarðavegur um Gufudalssveit verði lagður um Teigsskóg vera ásættanlega. „Ég virði þau sjónarmið sem komið hafa fram um náttúruverndargildi Teigsskógs en ég tel nýja útfærslu sem þýðir 1% rask á gróðurlendi vera ásættanlega niðurstöðu í ljósi brýnna hagsmuna svæðisins,“ segir þingmaðurinn í grein í vestfirska fréttamiðlinum BB.Ný veglína um Teigsskóg er merkt leið Þ-H.Kort/Vegagerðin.„Það er mat Vegagerðarinnar að vegur út norðanverðan Þorskafjörð í gegnum Teigsskóg og þverun Djúpafjarðar og Gufufjarðar sé öruggasti vegurinn til að tengja saman Reykhólasveit og Gufudalssveit. Næsti kostur, svokölluð I-leið, væri þremur milljörðum dýrari. Möguleikar eins og þverun Þorskafjarðar milli Staðar á Reykjanesi og Melaness hafa einnig verið skoðaðir og einnig göng undir Hálsana og fleiri vegastæði en þetta eru allt dýrari kostir,“ segir Lilja Rafney. Hún kveðst hins vegar óttast að endurupptaka málsins, kæruleið eða sérlög um veginn geti kallað á kæruferli og lagþrætur og að ekkert gerðist í vegaframkvæmdum á þessu svæði næstu 5 til 6 árin. „Nú verða allir að leggjast á eitt um það að koma veglínustæði á þessu svæði á hreint og tryggja framkvæmdafé til verksins. Þetta svæði má ekki búa við það að ekki verði fundin önnur leið strax ef Teigskógarleiðin er ófær vegna þess að það tæki mörg ár að fá niðurstöðu um hana. Menn verða því að sjálfsögðu að velja næsta kost þó hann sé dýrari því það verður að vera samfella í framkvæmdum annars missum við fjármagn burt af svæðinu í annað. Þetta svæði er að byggjast upp og tíminn er peningar og það verður að setja verðmiða á hvað það kostar samfélagið að framkvæmdir dragist von úr viti það gæti reynst samfélaginu dýrt og þrír milljarðar eru ekki stór tala í því samhengi,“ segir Lilja Rafney.Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar.Vísir/GVAGuðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, tók í þingræðu á þriðjudag undir þau sjónarmið að sérlög yrðu sett um veginn. „Miðað við það hvernig útfærslan á veginum hefur þróast frá upphaflegu hugmyndinni, í gegnum Teigsskóg, þá finnst mér álitlegra að fara í lagasetningu en áður. Vegurinn hefur það lítil áhrif á skóginn miðað við upphaflegu útfærsluna. Ég gat ekki mælt með lagasetningu áður, en mér finnst ég geta gert það núna, sem einni mögulegri leið sem þó er ekki fullkomin,“ sagði Guðmundur Steingrímsson.
Tengdar fréttir Vilja skoða sérlög á vegarlagningu um Teigsskóg Skipulagsstofnun hafnar tillögu Vegagerðarinnar um veg um Teigsskóg. Forseti Alþingis vill að þingið setji lög um vegarlagninguna. Formaður Byggðastofnunnar tekur undir. Skipulagsstofnun bundin að lögum, segir talsmaður stofnunarinnar. 17. september 2014 07:00 Telur breyttan veg ekki leyfa nýtt umhverfismat Framtíðarlega Vestfjarðavegar um Gufudalssveit er í algerri óvissu eftir að Skipulagsstofnun gerði Vegagerðinni ljóst að hún myndi ekki fallast á að vegur um Teigsskóg færi í nýtt umhverfismat með breyttri veglínu. 25. júní 2014 20:00 Hanna Birna segir Teigskóg í stjórnsýsluflækju Þingmenn eru sammála um að það þoli enga bið að finna leið til lausnar vegabóta á sunnanverðum Vestfjörðum. Innanríkisráðherra segir til greina að setja lög vegna málsins. 22. september 2014 19:49 Allt annað en Teigsskóg, segir Ögmundur Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur fallið frá því að láta Vestfjarðaveg liggja yfir hálsana tvö í Gufudalssveit og er tilbúinn að skoða alla aðra kosti nema þann að fara í gegnum Teigsskóg. Kristján Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, segir að leiðin um Teigsskóg sé sú eina færa. 9. nóvember 2011 18:56 Leið um Teigsskóg reynd til þrautar Vegagerðin hefur ákveðið að láta reyna til þrautar að koma vegi um Teigsskóg í gegnum skipulagsferli. 7. júlí 2014 19:45 Ráðherrar íhuga lög Þrír ráðherrar auk forseta Alþingis hafa sagt opinberlega að þeir vilji kanna setningu sérlaga á vegarlagningu um Teigsskóg á sunnanverðum Vestfjörðum. 23. september 2014 11:00 Veglínur sem Vegagerðin vill meta í Gufudalssveit Ný veglína um Teigsskóg er meðal valkosta í nýrri matsáætlun sem Vegagerðin hefur sent Skipulagstofnun til formlegrar ákvörðunar vegna framtíðarlegu Vestfjarðavegar. 26. ágúst 2014 12:45 Mest lesið Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Innlent Sveitarfélögin höfnuðu tillögunni á elleftu stundu Innlent Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Innlent Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Innlent Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Innlent Verkföll hafin í sex skólum Innlent Árásarmaðurinn hafi átt í samskiptum við lykilvitni Innlent Gátu ekki lent í þoku í Osló því flugmenn eru enn í þjálfun á Airbus Innlent Útganga kennara kom formanninum í opna skjöldu Innlent Þóra Tómasdóttir strýkur Tesla-eigendum öfugt Innlent Fleiri fréttir Svona skipta oddvitarnir stólunum Voru búin að segja að þeim hugnaðist ekki tillaga Ástráðs Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag „Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur“ Skilur vel reiðina sem blossi upp Útganga kennara kom formanninum í opna skjöldu Gátu ekki lent í þoku í Osló því flugmenn eru enn í þjálfun á Airbus Bein útsending: Blaðamannafundur nýs meirihluta í Reykjavík Óljóst með skólahald eftir helgi Trans fólk veigri sér við ferðalögum til Bandaríkjanna Nýr meirihluti muni ekki vaða í stærri deilumál Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Jöklar jarðar rýrna mun hraðar en áður vegna aukinnar hlýnunar Niðurstöðu beðið í Karphúsinu Sveitarfélögin höfnuðu tillögunni á elleftu stundu Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Búrfellslundur verður Vaðölduver Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Zúistabræður telja sig ekki hafa fengið sanngjarna meðferð Verkföll hafin í sex skólum Kennaraverkföll skella á Skólameistari gengur út frá því að kennarar leggi niður störf Óvissa um verkföll eftir frestunarbeiðni Áfastir tappar dragi úr lífsvilja Árásarmaðurinn hafi átt í samskiptum við lykilvitni „Hún verður örugglega afbragðsborgarstjóri“ Heiða Björg verður borgarstjóri Ögurstund, staða Play og óreyndur rútubílstjóri Sjá meira
Vilja skoða sérlög á vegarlagningu um Teigsskóg Skipulagsstofnun hafnar tillögu Vegagerðarinnar um veg um Teigsskóg. Forseti Alþingis vill að þingið setji lög um vegarlagninguna. Formaður Byggðastofnunnar tekur undir. Skipulagsstofnun bundin að lögum, segir talsmaður stofnunarinnar. 17. september 2014 07:00
Telur breyttan veg ekki leyfa nýtt umhverfismat Framtíðarlega Vestfjarðavegar um Gufudalssveit er í algerri óvissu eftir að Skipulagsstofnun gerði Vegagerðinni ljóst að hún myndi ekki fallast á að vegur um Teigsskóg færi í nýtt umhverfismat með breyttri veglínu. 25. júní 2014 20:00
Hanna Birna segir Teigskóg í stjórnsýsluflækju Þingmenn eru sammála um að það þoli enga bið að finna leið til lausnar vegabóta á sunnanverðum Vestfjörðum. Innanríkisráðherra segir til greina að setja lög vegna málsins. 22. september 2014 19:49
Allt annað en Teigsskóg, segir Ögmundur Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur fallið frá því að láta Vestfjarðaveg liggja yfir hálsana tvö í Gufudalssveit og er tilbúinn að skoða alla aðra kosti nema þann að fara í gegnum Teigsskóg. Kristján Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, segir að leiðin um Teigsskóg sé sú eina færa. 9. nóvember 2011 18:56
Leið um Teigsskóg reynd til þrautar Vegagerðin hefur ákveðið að láta reyna til þrautar að koma vegi um Teigsskóg í gegnum skipulagsferli. 7. júlí 2014 19:45
Ráðherrar íhuga lög Þrír ráðherrar auk forseta Alþingis hafa sagt opinberlega að þeir vilji kanna setningu sérlaga á vegarlagningu um Teigsskóg á sunnanverðum Vestfjörðum. 23. september 2014 11:00
Veglínur sem Vegagerðin vill meta í Gufudalssveit Ný veglína um Teigsskóg er meðal valkosta í nýrri matsáætlun sem Vegagerðin hefur sent Skipulagstofnun til formlegrar ákvörðunar vegna framtíðarlegu Vestfjarðavegar. 26. ágúst 2014 12:45