Lífið

Hætta saman í góðu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Jordin og Jason á góðri stundu
Jordin og Jason á góðri stundu vísir/getty
Tónelska parið Jordin Sparks og Jason Derulo eru hætt saman eftir þriggja ára samband.

Jason staðfesti þetta í viðtali við KDWB í Minneapolis í gær. Fyrst vildi hann lítið tala um sambandsslitin en sagði síðan að þau Jordin væru enn vinir og að allt væri í góðu.

„Allt er í góðu. Þetta er ekki slæmt ástand. Þetta eru ekki ein af þeim sambandsslitum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×