Lífið

"Hitler var ekki með þennan sjarma“

Þórður Ingi Jónsson skrifar
eftir Lucien Freud
eftir Lucien Freud
Deborah Cavendish, seinasta Mitford-systirin og hertogafrúin af Devonshire lést í gær 94 ára að aldri. Deborah, sem átti vægast sagt skrautlega ævi, var yngsta barnið í fjölskyldunni en systur hennar voru ansi umdeildar.

Ein systirin Diana giftist fasistaleiðtoga Breta, Oswald Mosley. Önnur systirin Unity var hugfanginn af Hitler en hún fór með Deborah til Þýskalands árið 1937 þegar hún var 17 ára og bauð henni í teboð með leiðtoganum.

Seinna á ævinni bar Deborah Hitler saman við aðra fræga leiðtoga, samkvæmt BBC. „Ef þú varst í sama herbergi og Churchill tókstu eftir þessum gríðarlega sjarma hans. John Kennedy var svona líka. Hitler var ekki með þennan sjarma – allavega fannst mér það ekki.“ Unity reyndi síðan að fremja sjálfsmorð þegar Bretland réðst á Þýskaland en Hitler heimsótti hana og borgaði sjúkrahúsreikningana.

Deborah giftist yngri syni greifans af Devonshire, Andrew Cavendish þegar hún var 21 ára að aldri og varð hertogafrú þegar fyrsti sonur greifans lést í seinni heimsstyrjöldinni. Hjónin erfðu gríðarlega mikla peninga, írskan kastala og 35.000 ekra sveitasetur í Derbyshire. Seinnameir breytti Deborah setrinu í einn vinsælasta ferðamannastað Bretlands en hún var oft á svæðinu til að bjóða gesti velkomna og sýna þeim setrið.

Deborah skrifaði fjölda bóka á ævinni svo sem ævisöguna Wait For Me! sem kom út árið 2010. Þá var hún fyrirsæta fyrir Lucian Freud, einn frægasta málara Bretlands, og mikilvirkur safnari Elvis Presley dóts.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×