Lífið

Mark Zuckerberg er eini vinur Andy Samberg á Facebook

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Spéfuglinn Andy Samberg var gestur Jimmy Fallon í spjallþættinum The Tonight Show í vikunni.

Andy sagði meðal annars frá því að hann væri með lokaða Facebook-síðu en ætti aðeins einn vin - sjálfan stofnanda Facebook, Mark Zuckerberg.

Andy segir, eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði, að Mark hafi sannfært hann um að stofna síðuna og Andy hringir reglulega í hann til að fá tækniaðstoð svo hann fái ekki vinabeiðnaflóð yfir sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×