Lífið

Britney Spears gefur hertogaynjunni nærföt

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Söngkonan Britney Spears er búin að láta undirfatalínuna The Intimate Britney Spears Lingerie Collection á markað.

Britney hélt heljarinnar teiti í London í vikunni til að fagna línunni og sagði að hún vildi endilega að hertogaynjan Kate Middleton klæddist línunni.

„Mig langar að sjá Kate í undirfatahönnun minni. Það væri æðislegt. Ég ætla að senda henni eitt stykki af hverju. Þannig að hún hefur úr nægu að velja,“ sagði Britney í teitinu við mikinn fögnuð viðstaddra.

Britney er alltaf í stuði.
Britney með fyrirsætunum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×