Lífið

„Litli guttinn er væntanlegur í febrúar“

Ellý Ármanns skrifar
visir/facebook
Söngkonan  Ruth Moore  eða Ruth Reginalds eins og við þekkjum hana, sem búsett er í Bandaríkjunum,  á von á fjórða barnabarninu á næsta ári. Dóttir Rutar, Glódís Tara Fannarsdóttir og unnusti hennar, Dagur Gunnarsson, eiga von á dreng en Glódís á einn son fyrir.

Ruth birti sónarmyndina af drengnum á Facebook-síðunni sinni sem sjá má á myndinni hér fyrir ofan með skilaboðunum:  

„Hér má sjá fallega barnabarnið mitt.“

Dagur Gunnarsson og Glódís Tara Fannarsdóttir eiga von á dreng í febrúar.
Hrikalega montin amma

„Ég á fjórar dætur og eina fósturdóttur svo á ég eina ömmustelpu, tvo ömmustráka og nú annar á leiðinni. Ég er hrikalega montin en ég var búin að gefast upp á að reyna að framleiða drengi sjálf,“ segir Ruth spurð um ömmuhlutverkið kát yfir kraftaverkinu.

„Litli guttinn er væntanlegur í febrúar,“ segir hún spennt áður en við kveðjum.

Í myndskeiðinu hér fyrir neðan má heyra Ruth syngja lagið Furðuverk á sínum yngri árum en myndirnar eru af Kieu dóttur hennar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×