Lífið

Prófa grófar kynlífsstellingar á götum New York

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Tímaritið Cosmopolitan býður lesendum sínum oft uppá kynlífsstellingar í miðlum sínum og eru margra hverjar ansi flóknar og virðast nánast ómögulegar.

Par, sem vill ekki láta nafn síns getið, ákvað að fara út á götur New York-borgar og prófa hvort venjulegt fólk gæti í raun komið sér í þessar stellingar með góðu móti. 

Eins og sést á meðfylgjandi myndböndum hefur parið vakið gríðarlega athygli í húðlituðum búningum og eru tilraunir þeirra til að koma sér í stellingarnar ansi spaugilegar. 














Fleiri fréttir

Sjá meira


×