Lífið

North West á fremsta bekk með foreldrum sínum

Álfrún Pálsdóttir skrifar
Sú stutta hafði meiri áhuga á sessunautum sínum en því sem fram fór á tískupallinum.
Sú stutta hafði meiri áhuga á sessunautum sínum en því sem fram fór á tískupallinum. Vísir/Getty
Stjörnuhjónin Kim Kardashian West og Kanye West láta sig að sjálfsögðu ekki vanta á tískuvikuna í París sem fer fram um þessar mundir. Að þessu sinni er eins árs dóttir þeirra hjóna, North West, með í för.

Litla North var senuþjófur á sýningu Balenciaga í gær þar sem hún sat í fangi móður sinnar á fremsta bekk. Meira að segja fór athyglin af nýstárlegri hárgreiðslu rapparans, en hann hefur rakað örvar í hársvörðinn á sér, yfir á North sem virtist skemmta sér vel.

Alexander Wang þykir vera að gera góða hluti sem yfirhönnuður hjá Balenciaga en sýningin féll í kramið hjá tískupressunni.

Flott frá Wang fyrir Balenciaga.
Svartur samfestingur.

Tengdar fréttir

Allsnakin í rúminu

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian djörf í breska GQ.

Kim Kardashian kona ársins

Mikið var um dýrðir þegar GQ Men of the Year-verðlaunin voru afhent í gærkvöldi.

Vill að Kim hætti í þættinum

Rapparinn Kanye West er sagður vilja að eiginkona sín, Kim Kardashian, hætti í raunveruleikaþættinum Keeping Up with the Kardashians.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×