Lífið

Amber Rose að skilja

Wiz og Amber meðan allt lék í lyndi
Wiz og Amber meðan allt lék í lyndi Vísir/Getty
Rapparinn Wiz Khalifa og Amber Rose eru að skilja. Samkvæmt heimildum er skilnaðurinn ekki í góðu og haft er eftir Amber að hún ætli að fara fram á fullt forræði yfir syni þeirra, Sebastian, sem fæddist í febrúar árið 2013.

Amber og Wiz hafa verið gift í fjórtán mánuði, en rapparinn bað hennar í mars árið 2012, eftir aðeins árs samband. 

Amber Rose er hvað þekktust fyrir að vera fyrrum kærasta rapparans Kanye West, en þau hættu saman árið 2010.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×