Lífið

Dansaði eins og Carlton í Dancing with the Stars

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Ribeiro og Carson fengu fullt stig húsa hjá dómurunum.
Ribeiro og Carson fengu fullt stig húsa hjá dómurunum.
Aðdáendur sjónvarpsþáttanna Fresh Prince of Bel-Air muna eflaust allir eftir dansinum sem Carlton Banks átti til að taka á góðum stundum. Það hefur því verið nokkur eftirvænting á meðal aðdáenda eftir að leikarinn Alfonso Ribeiro, sem fór með hlutverk Carltons, hóf keppni í Dancing with the Stars.

Í þættinum eru heimsfrægir einstaklingar paraðir saman við atvinnudansara og látnir keppa í vikulegum sjónvarpsþáttum. Það var svo í gær sem Ribeiro og dansfélagi hans Witney Carson stigu á sviðið og tóku hinn þekkta „Carlton“ dans.

Það lá ljóst fyrir um leið og músíkin byrjaði í upphafi atriðisins hvað væri í vændum en Carlton dansaði gjarnan við lagið It's Not Unusual í flutningi Tom Jones, sem var einmitt lagið sem þau dönsuðu við. Þau geymdu þó það besta þangað til síðast og tóku dansinn rétt í lokinn á atriðinu.

Þau uppskáru mikil fagnaðarlæti áhorfenda og fullt stig húsa hjá dómurunum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×