Lífið

Michael Phelps í sex mánaða keppnisbann

Bjarki Ármannsson skrifar
Phelps er sigursælasti keppandi Ólympíuleikanna frá upphafi.
Phelps er sigursælasti keppandi Ólympíuleikanna frá upphafi. Vísir/AFP
Bandaríski sundkappinn Michael Phelps var í dag úrskurðaður í sex mánaða keppnisbann. Hann var handtekinn í Baltimore í síðustu viku fyrir að keyra undir áhrifum áfengis en hann hefur síðan beðist afsökunar á Twitter og tilkynnti í dag að hann hyggðist taka sér frí frá keppni.

BBC greinir frá. Phelps er sigursælasti keppandi Ólympíuleikanna frá upphafi, en hann vann átján gullmedalíur á leikunum 2004, 2008 og 2012.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×