Lífið

House of Cards-stjarna trúlofuð

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Nadia og Corey.
Nadia og Corey. vísir/getty
Leikarinn Corey Stoll er búinn að trúlofast leikkonunni Nadiu Bowers samkvæmt heimildum tímaritsins Us Weekly.

Corey er hvað þekktastur fyrir að leika Peter Russo í Netflix-seríunni House of Cards en hefur einnig leikið stór hlutverk í Homeland og The Strain.

„Corey og Nadia eru svo frábært par, hún styður hann svo mikið. Mér brá ekki einu sinni þegar ég heyrði af trúlofuninni,“ segir heimildarmaður tímaritsins.

Corey er nú við tökur á kvikmyndinni Ant-Man með Paul Rudd en hún er væntanleg í kvikmyndahús í júlí á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×