Formúla 1

Lewis Hamilton vinnur í Japan

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton vann á Suzuka í mikilli bleytu.
Lewis Hamilton vann á Suzuka í mikilli bleytu. Vísir/Getty
Lewis Hamilton vann Japanskappaksturinn á Suzuka brautinni. Liðsfélagi hans hjá Mercedes Nico Rosberg varð annar og Sebastian Vettel á Red Bull varð þriðji.

Keppnin hófst fyrir aftan öryggisbílinn vegna mikillar rigningar. Þetta hefur ekki gerst síðan í Kanada 2011. Keppnin var stöðvuð á öðrum hring. Þá mynduðu allir bílar einfalda röð fyrir aftan öryggisbílinn.

Veðurfarið hafði verið yfirvofandi síðan á fimmtudag. Hugmyndin með að senda bílana út á eftir öryggisbílnum er að reyna að hreinsa vatnið af brautinni.

Keppnin var endurræst eftir um það bil 15 mínútur á þjónustusvæðinu. Fernando Alosno hætti á fyrsta hringnum eftir endurræsinguna. Bíllinn virðist hafa slökkt á sér.

Á fimmta hring fóru ökumenn að heimta að losna við öryggisbílinn. „Brautinn verður ekkert betri,“ sagði Lewis Hamilton. Fleiri voru á sömu nótum. Hamilton ávarpaði svo Charlie Whiting beint í talstöðinni sem er afar óvenjulegt.

Eftir níu hringi kom öryggisbíllinn inn. Jenson Button kom strax á eftir öryggisbílnum inn til að fá milli regndekk. Tvemur hringjum seinna komu flestir aðrir inn til að sækja milliregndekk. Button veðjaði á rétt dekk, hann var í sjöunda sæti þegar hann kom inn fyrir milliregndekk. Eftir að allir höfðu skipt um dekk var Button þriðji.

Red Bull liðið stillti bílunum sínum upp fyrir keppni í rigningu. Það þýðir að þeir voru hægari en ella í tímatökunni en höfðu meira grip fyrir vikið í keppninni.

Vettel var sprækur í rigningunni í dag.Vísir/Getty
Hamilton náði forystu á 28. hring. Rosberg var búinn að berjast við bílinn nokkra hringi. Gripið í dekkjum Rosberg Rosberg var búið.

Á hring 35 fór að dropa aftur. Ökumenn þurftu að tippla meira á tánum í beygjum til að halda bílum sínum á brautinni. Adrian Sutil lenti á varnarvegg í stjórnlausum bíl á 42. hring. Jules Bianchi á Marussia lenti í óhappi á sama stað skömmu seinna. Á sama tíma skiptu McLaren menn yfir á full regndekk aftur. Öryggisbíllinn kom út og margir skiptu þá yfir á full regndekk.

Keppnin var stöðvuð á 45. hring vegna þess að sjúkrabíll var kallaður á vettvang. Aftur mynduðu bílarnir einfalda röð á eftir öryggisbílnum á þjónustusvæðinu. Jules Bianchi virðist hafa slasast í óhappinu.

Bianchi hefur verið fluttur meðvitundarlaus á sjúkrahús með sjúkrabíl í lögreglufylgd. Svo virðist sem bíll Bianchi hafi lent á vinnutækinu sem var að fjarlægja bíl Sutil. Nánari upplýsingar koma þegar þær berast.

„Ég vona að Bianchi sé í lagi. Mér brá aðeins þegar ég fór út fyrir braut í fyrstu beygju en það var vegna þess að ég gleymdi að loka afturvængnum,“ sagði Hamilton eftir keppnina.

„Frábærir aðdáendur hér í Japan, til hamingju Lewis. Hugsanir okkar allra eru með Jules, vonandi er ekkert alvarlegt að,“ sagði Rosberg á verðlaunapallinum.

„Erfiðar aðstæður en góð barátta á brautinni. Vonandi er Jules ekki mikið slasaður,“ sagði Vettel.

„Keppnin byrjaði of snemma og endaði of seint, við hefðum átt að vera löngu búin að blása hana af. Fyrst og fremst hef ég áhyggjur af Jules,“ sagði Felipe Massa.

Röðin á þjónustusvæðinu á eftir öryggisbílnum.Vísir/Getty
Úrslit japanska kappakstursins 2014:

1.Lewis Hamilton - Mercedes - 25 stig

2.Nico Rosberg - Mercedes - 18 stig

3.Sebastian Vettel - Red Bull - 15 stig

4.Daniel Ricciardo - Red Bull - 12 stig

5.Jenson Button - McLaren - 10 stig

6.Valtteri Bottas - Williams - 8 stig

7.Felipe Massa - Williams - 6 stig

8.Nico Hulkenberg - Force India - 4 stig

9.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso - 2 stig

10.Sergio Perez - Force India - 1 stig

11.Daniil Kvyat - Toro Rosso

12.Kimi Raikkonen - Ferrari

13.Esteban Gutierrez - Sauber

14.Kevin Magnussen - McLaren

15.Romain Grosjean - Lotus

16.Pastor Maldonado - Lotus

17.Marcus Ericsson - Caterham

18.Max Chilton - Marussia

19.Kamui Kobayashi - Caterham

Kláruðu ekki:

Jules Bianchi - Marussia

Adrian Sutil - Sauber

Fernando Alonso - Ferrari

Stigamunurinn er nú orðinn 10 stig í baráttu Hamilton og Rosberg um heimsmeistaratitil ökumanna. Hamilton leiðir með 266 stig.


Tengdar fréttir

Ricciardo: Lokakeppnirnar munu sanna hvor er hraðari

Daniel Ricciardo hjá Red Bull telur að síðustu fimm keppnir tímabilsins muni skera úr um hvor ökumanna liðsins er hraðari, hann sjálfur eða fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel.

Sebastian Vettel til Ferrari

Fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel hefur tekið ákvörðun um að yfirgefa herbúðir Red Bull þar sem hann hefur unnið alla sína titla í Formúlu 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×