Lífið

Ashton og Mila stríða almúganum með fullt af barnamyndum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Mila og Ashton.
Mila og Ashton. vísir/getty
Leikarinn Ashton Kutcher og leikkonan Mila Kunis eignuðust sitt fyrsta barn á þriðjudaginn. Litla hnátan hefur hlotið nafnið Wyatt Isabelle Kutcher. 

Skötuhjúin stríða aðdáendum sínum á heimsíðu Ashtons þar sem þau birta fullt af barnamyndum og mynd af geit.

„Hérna er barnamyndin. Tja, ein af þeim er sú rétta. Getur þyrlan núna hætt að fljúga yfir húsið okkar, það er barn sofandi hér inni! Og hún er súper sæt,“ skrifar Ashton við myndirnar.

„Mila og ég viljum bjóða Wyatt Isabelle Kutcher velkomna í heiminn. Megi líf þitt vera fullt af undrun, ást, hlátri, heilbrigði, hamingju, forvitni og einkalífi. Getið þið fundið það út hvaða barn er okkar eða skiptir það einhverju máli? Öll börn eru sæt,“ bætir Ashton við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×