Lífið

Fylgjendum fækkar á Twitter ef þér er dömpað

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Venkata Garimella hjá Aalto-háskóla í Finnlandi hóaði saman nokkrum vinum sínum til að rannsaka hvaða áhrif sambandsslit hafa á fylgjendafjöldann á Twitter.

Venkata og vinir hennar fundu fjörutíu þúsund pör á Twitter og fylgdust með hvað gerðist þegar þau hættu saman.

Í ljós kom að fylgjendum þeirra fækkaði um fimmtán til tuttugu, en líklega eru einhverjir af þeim sameiginlegir vinir fyrrverandi parsins.

Þá kom einnig í ljós að orðalag þeirra sem hættu saman breyttist á Twitter. Á myndinni hér fyrir neðan má sjá orð sem voru tístuð af þeim sem voru í sambandi til vinstri og orð sem voru tístuð af þeim sem hættu saman til hægri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×