Lífið

Setti kartöflu upp í leggöngin

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
22ja ára kólumbísk kona var flutt á spítala í vikunni með mikla kviðverki. Læknunum brá heldur betur í brún þegar þeir skoðuðu konuna en þá kom í ljós að hún var með kartöflu upp í leggöngunum. Þetta kemur fram á fréttasíðunni Colombia Reports.

„Mamma sagði mér að ég ætti að setja kartöflu þarna upp ef ég vildi ekki verða ólétt og ég trúði henni,“ segir konan sem er ekki nafngreind.

Kartaflan hafði verið í leggöngum konunnar í um tvær vikur og var byrjuð að skjóta rótum. Sem betur var hægt að fjarlægja kartöfluna án skurðaðgerðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×