Lífið

Berir að ofan og halda á hvolpum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Scandal-stjarnan Scott Foley situr fyrir í nýrri auglýsingaherferð heimilisvörumerkisins Charisma. Á myndunum er hann ber að ofan og heldur á hvolpi.

Í myndbandi þar sem skyggnst er á bak við tjöldin við gerð herferðarinnar segir Scott að honum finnist hann ekki kynþokkafullur.

„Ég myndi segja að mér finnist ég aldrei kynþokkafullur. Eiginkona mín segir mér að ég sé kynþokkafullur og fólk á Twitter segir mér að ég sé kynþokkafullur þannig að það hlýtur að vera eitthvað til í því, er það ekki?“ segir Scott.

Í vikunni deildi Scott mynd af meðleikara sínum í sjónvarpsseríunni Scandal, Tony Goldwyn, þar sem hann sést sitja í stól, ber að ofan og haldandi á hvolpi. Við myndina skrifar Scott:

„Takk @TonyGoldwyn fyrir að tryggja það að ég sé ekki eini maðurinn sem er ber að ofan, haldandi á hundi. Ég skulda þér!“

Fleiri myndir af Scott má sjá hér fyrir neðan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×