Lífið

Búin að breyta nafninu í Amal Clooney

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Mannréttindalögfræðingurinn Amal Alamuddin er búin að breyta nafni sínu í Amal Clooney á heimsíðu lögmannastofu sinnar, Doughty Street Chambers.

Amal gekk að eiga stórleikarann George Clooney í Feneyjum í lok síðasta mánaðar. Meðal gesta í brúðkaupinu voru Anna Wintour, Cindy Crawford, Matt Damon, Emily Blunt og Bill Murray.

Amal og George ákváðu síðan að eyða hveitibrauðsdögunum á heimili sínu á Englandi sem þau festu nýverið kaup á.


Tengdar fréttir

Gifta sig í Feneyjum

Styttist í stóra daginn hjá George Clooney og Amal Alamuddin.

Amal er ekki ólétt

Sögusagnir um barneignir George Clooney og unnustu hans ekki sannar.

Sæt á stefnumóti

Stórleikarinn George Clooney og Amal Alamuddin njóta lífsins á Ítalíu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.