Zidane dæmdur í þriggja mánaða bann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. október 2014 08:30 Zinedine Zidane og Carlo Ancelotti. Vísir/Getty
Franska fótboltagoðsögnin Zinedine Zidane er farinn að þjálfa hjá Real Madrid en það byrjar ekki vel því kappinn hefur verið dæmdur í þriggja mánaða bann af spænska knattspyrnusambandinu. Ástæða bannsins hjá Zidane er að hann var ekki kominn með nauðsynleg réttindi þegar hann stýrði varaliði Real Madrid, Real Madrid Castilla. Auk Zidane var aðstoðarmaður hans, Santiago Sanchez, einnig dæmdur í þriggja mánaða bann. Forráðamenn Real Madrid eru mjög ósáttir við úrskurðinn og ætla að berjast gegn honum en þeir telja að Zidane sé með öll nauðsynleg leyfi frá franska knattspyrnusambandinu. Zinedine Zidane lék í fimm ár með Real Madrid eftir að hafa verið keyptur á metfé frá Juventus. Zidane var þrisvar kosinn besti knattspyrnumaður heims (1998, 2000 og 2003) en hann varð heimsmeistari með Frökkum 1998 og vann Meistaradeildina með Real Madrid 2002 þar sem hann skoraði sigurmarkið í úrslitaleiknum. Síðasti fótboltaleikur hans á ferlinum var sögulegur en hann var þá rekinn af velli fyrir að skalla Ítalann Marco Materazzi í brjóstkassann í úrslitaleiknum á Hm 2006. Zidane vann fyrst sem ráðgjafi Florentino Perez, forseta Real Madrid, en var síðan ráðinn íþróttastjóri hjá félaginu árið 2011. Hann tók síðan við varaliðinu fyrir þetta tímabil.
Fótbolti Mest lesið Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ Körfubolti Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina Handbolti Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Enski boltinn „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Körfubolti KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Handbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Stjarnan - Álftanes 108-104 | Unnu grannaslaginn naumlega Körfubolti Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Fleiri fréttir Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Immobile skaut Bologna í úrslit Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Hrannar Snær til Noregs Breiðablik, Valur og Þór/KA fengu milljónir vegna EM Elías mættur til meistaranna Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Karólína Lea því miður of snemma í jólafrí Alexander Isak fékk sænska gullboltann Hilmar Árni til starfa hjá KR „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Segir fjórðung í bók Óla ósannan Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Svona endaði Sambandsdeildin: Finnarnir áfram eftir jafntefli við Palace Strasbourg - Breiðablik 3-1 | Hetjuleg barátta dugði skammt Napoli í úrslit í Sádi-Arabíu Åge Hareide látinn Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn „Við þurfum bara að keyra á þetta“ Segir Nóel Atla frábært dæmi um það þegar hlutirnir gangi upp Glódís gæti þurft að ryðja Man. Utd og Barcelona úr vegi að úrslitaleiknum Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Sjá meira