Innlent

3500 manns hafa boðað komu sína á Austurvöll

Mótmælin á Austurvelli á mánudag.
Mótmælin á Austurvelli á mánudag.
3500 manns hafa boðað komu sína á Austurvöll á morgun klukkan fimm til að mótmæla ástandinu í samfélaginu og standa vörð um heilbrigðiskerfið.

Þetta kemur fram á fésbókarsíðu mótmælanna. Þetta er annar mánudagurinn í röð sem boðað er til mótmæla á Austurvelli en í síðustu viku mættu 4500 manns.

Ríkisstjórnin hyggst kynna á morgun niðurtöðu varðandi niðurfærslu á höfuðstól verðtryggðra húsnæðislána en um sjötíu þúsund heimili sóttu um niðurfærsluna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×