Rosberg á ráspól í Abú Dabí Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 22. nóvember 2014 14:06 Rosberg á ráspól, spennan fyrir keppninni er nánast óbærileg. Vísir/Getty
Nico Rosberg náði ráspól liðsfélagi hans Lewis Hamilton varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji. Þessi úrslit auka á spennuna í keppninni á morgun. Í fyrstu lotunni duttu fimm hægustu ökumennirnir út, einum fleiri en í síðustu tveimur vegna þess að Caterham mætti aftur til keppni. Fórnarlömb fyrstu lotu voru Will Stevens og Kamui Kobayashi á Caterham, Pastor Maldonado og Romain Grosjean á Lotus og Esteban Gutierrez á Sauber. Williams menn voru tilbúnir að nýta sér mistök Rosberg. Felipe Massa varð annar í annarri lotu og Bottas varð þriðji. Rosberg var fjórði. Í annarri lotu duttu Sergio Perez og Nico Hulkenberg á Force India, Kevin Magnussen á McLaren, Jean-Eric Vergne á Toro Rosso og Adrian Sutil á Sauber. Þriðja lotan var spennandi, Hamilton gerði mistök í fyrstu tilraun og Rosberg var þá með ráspól. Í seinni tilrauninni í þriðju lotu náði Rosberg að verjast áhlaupi Hamilton. Ef keppnin fer svona á morgun verður Hamilton meistari, hins vegar er stutt í Williams bílana sem geta sett strik í reikning breska ökumannsins.Bottas gæti blandað sér í titilbaráttu Mercedes manna á morgun.Vísir/Getty„Góður dagur í dag, ég vil þakka liðinu fyrir góðan bíl. En þetta var lítið skref í átt að titlinum. Ég var að vonast eftir Williams bíl á milli okkar en það gerðist ekki. Ég er tilbúinn að borga í heilsulindi fyrir Valtteri til að hann sé í einkar góðu formi á morgun,“ sagði Rosberg sem var brosmildur og léttur eftir tímatökuna. „Ég náði ekki að setja almennilegan hring saman en bíllinn er frábær,“ sagði Hamilton. „Það er gott fyrir okkur að ná þriðja og fjórða. Við höfum séð það að Mercedes eru fljótir í keppnunum. Ef ég fæ tækifæri þá mun ég reyna að koma mér framar en það gæti verið erfitt,“ sagði Bottas.Úrslit tímatökunnar á Yas Marina brautinni 2014:1.Nico Rosberg - Mercedes 2.Lewis Hamilton - Mercedes 3.Valtteri Bottas - Williams 4.Felipe Massa - Williams 5.Daniel Ricciardo - Red Bull 6.Sebastian Vettel - Red Bull 7.Daniil Kvyat - Toro Rosso 8.Jenson Button - McLaren 9.Kimi Raikkonen - Ferrari 10.Fernando Alonso - Ferrari 11.Kevin Magnussen - McLaren 12.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso 13.Sergio Perez - Force India 14.Nico Hulkenberg - Force India 15.Adrian Sutil - Sauber 16.Esteban Gutierrez - Sauber 17.Pastor Maldonado - Lotus 18.Kamui Kobayashi - Caterham 19.Will Stevens - Caterham 20.Romain Grosjean - Lotus Bein útsending frá lokakeppni tímabilsins hefst á Stöð 2 Sport klukkan 12:30 á morgun. Spennan er nánast óbærileg.
Formúla Tengdar fréttir Mercedes ábyrgt fyrir heiðarlegri baráttu Mercedes liðið í Formúlu 1 segir að forgangsatriði liðsins í Abú Dabí verði að tryggja að báðir ökumenn eigi sanngjarna möguleika á heimsmeistaratitlinum. 16. nóvember 2014 11:00 Damon Hill telur pressuna vera á Hamilton Damon Hill sem varð heimsmeistari í Formúlu 1 árið 1996, segir að Abú Dabí verði erfiðari keppni fyrir Lewis Hamilton en Nico Rosberg. 17. nóvember 2014 12:30 Hamilton fljótastur á báðum æfingum Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur allra á báðum æfingum dagsins í Abú Dabí. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg var þó ekki langt á eftir. 21. nóvember 2014 18:11 Rosberg: Hamilton þarf að keppa af sanngirni Nico Rosberg hefur sagt liðsfélaga sínum og keppinaut, Lewis Hamilton að keppnin í Abú Dabi þurfi að vera sanngjörn. 20. nóvember 2014 22:45 Allar brellur notaðar fyrir lokaátökin í Abú Dabí Mercedes-ökuþórarnir Lewis Hamilton og Nico Rosberg berjast um heimsmeistaratitilinn í Formúlu 1 í Abú Dabí á sunnudaginn. Enginn annar en þeir getur unnið. Sálfræðistríðið í fullum gangi hjá "vinunum“. 22. nóvember 2014 10:00 Mest lesið Raygun segir að hatrið hafi verið hrikalegt Sport Ísland aldrei ofar á heimslistanum Fótbolti Hænuskrefi frá hálfum milljarði og gæfu fyrir íslenskan fótbolta Íslenski boltinn „Var kominn með hausverk á hliðarlínunni“ Fótbolti Hótuðu sjónvarpskonu og ófæddu barni hennar Sport Kaupverðið klárt og Albert á leið í fjólublátt Fótbolti Finnst mjög óréttlátt að bronsið sé tekið af henni Sport Íslenska fánanum flaggað í Flórens til að fagna komu Alberts Fótbolti „Hann var ekki fallegur drengurinn“ Íslenski boltinn „Ef ég get verið í stuttbuxum og bol væri það frábært“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Nýliðarnir sanka að sér dýrmætri reynslu Eftirsóttur Sainz fer til Williams eftir tímabilið Russell dæmdur úr leik og Hamilton fagnar sigri í Belgíu Yuki Tsunoda færður aftur um 60 sæti í ræsingu Verstappen fljótastur en ræsir ellefti Verstappen færður aftur um tíu sæti í ræsingu Hamilton skýtur á Verstappen: Verður að haga sér eins og heimsmeistari Banna Verstappen að hanga í tölvunni langt fram eftir nóttu Ocon verður fyrsti sigurvegarinn til að keyra fyrir Haas Reynslumikill maður ráðinn í brúna hjá Formúlu 1 liði Audi Verstappen ætlar ekki að biðjast afsökunar: „Geta haldið sig heima“ Hamilton á verðlaunapall í 200. sinn Norris viðurkennir að það hafi kitlað að láta sigurinn ekki af hendi Norris hleypti Piastri fram úr sér og Ástralinn vann sinn fyrsta sigur Hamilton hrósar Schumacher fyrir að koma út úr skápnum Ralf Schumacher kemur út úr skápnum Hélt að hann myndi aldrei vinna aftur: „Ég get ekki hætt að gráta“ Hamilton fyrstur í fyrsta sinn í langan tíma Semja við Bellingham Formúlu 1 heimsins McLaren vill að Verstappen verði refsað: Allur heimurinn veit hver er sá seki Sjá meira
Mercedes ábyrgt fyrir heiðarlegri baráttu Mercedes liðið í Formúlu 1 segir að forgangsatriði liðsins í Abú Dabí verði að tryggja að báðir ökumenn eigi sanngjarna möguleika á heimsmeistaratitlinum. 16. nóvember 2014 11:00
Damon Hill telur pressuna vera á Hamilton Damon Hill sem varð heimsmeistari í Formúlu 1 árið 1996, segir að Abú Dabí verði erfiðari keppni fyrir Lewis Hamilton en Nico Rosberg. 17. nóvember 2014 12:30
Hamilton fljótastur á báðum æfingum Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur allra á báðum æfingum dagsins í Abú Dabí. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg var þó ekki langt á eftir. 21. nóvember 2014 18:11
Rosberg: Hamilton þarf að keppa af sanngirni Nico Rosberg hefur sagt liðsfélaga sínum og keppinaut, Lewis Hamilton að keppnin í Abú Dabi þurfi að vera sanngjörn. 20. nóvember 2014 22:45
Allar brellur notaðar fyrir lokaátökin í Abú Dabí Mercedes-ökuþórarnir Lewis Hamilton og Nico Rosberg berjast um heimsmeistaratitilinn í Formúlu 1 í Abú Dabí á sunnudaginn. Enginn annar en þeir getur unnið. Sálfræðistríðið í fullum gangi hjá "vinunum“. 22. nóvember 2014 10:00