Sport

Brady elskar að öskra F-orðið

Brady öskrar hér F-orðið einu sinni sem oftar.
Brady öskrar hér F-orðið einu sinni sem oftar. vísir/getty
Ameríski draumurinn Tom Brady, leikstjórnandi New England Patriots, segir að NFL-leikmenn séu engir kórdrengir og megi því nota orðið fuck er þeim hentar.

Brady hefur verið gagnrýndur síðustu vikur fyrir að öskra FUCK í hvert skipti sem eitthvað klikkar hjá honum.

Hann hefur engan áhuga á að afsaka þá hegðun þó honum finnist verra er það heyrist í sjónvarpinu. Hann segir að það sé þó sjónvarpsstöðvunum að kenna.

„Ég vildi að ég passaði mig stundum aðeins betur en þetta orð lýsir því svo vel hvernig manni líður. Því lætur maður það vaða er maður þarf að rasa út," sagði Brady en hann segist þó ekki nota orðið heima hjá sér.

„Við erum engir kórdrengir. Það er mikill hiti og tilfinningar í leikjum. Að spila leik er ekki eins og að fara í kirkju."

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×