Nú er tækifærið fyrir Alfreð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. desember 2014 12:30 Alfreð Finnbogason. Vísir/Getty
Slæmar fréttir fyrir spænska framherjann Imanol Agirretxe gætu verið góðar fréttir fyrir íslenska framherjann Alfreð Finnbogason í baráttunni um sæti í fremstu línu spænska liðsins Real Sociedad. Imanol Agirretxe hefur haldið Alfreð út úr byrjunarliðinu síðustu vikurnar en Agirretxe verður frá keppni í nokkrar vikur eftir að hafa tognað aftan í læri á föstudagskvöldið. Agirretxe fór í myndatöku og á heimasíðu félagsins segir frá því að hann sé á leiðinni í endurhæfingu og spili ekkert á næstunni. Alfreð kom inná fyrir Imanol Agirretxe strax á áttundu mínútu og kláraði leikinn þar sem Real Sociedad vann 3-0 sigur á Elche. David Moyes sendi Alfreð inn í leikinn og fagnaði í kjölfarið sínum fyrsta sigri sem þjálfari spænska liðsins. Framundan eru síðan tveir leikir á næstu sex dögum, fyrst bikarleikur á móti Real Oviedo á fimmtudaginn og svo útileikur á móti Villarreal á sunnudagskvöldið. Það er til mikils að vinna hjá Alfreð að standa sig vel í þessum tveimur leikjum því sunnudaginn 14.desember fær Real Sociedad nágrannanna úr Baskalandi, Athletic Club Bilbao, í heimsókn á Estadio Municipal de Anoeta. Það vill enginn missa af þeim nágrannaslag.
Spænski boltinn Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Tímabært að breyta til Handbolti Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti FH-ingar kynntu Birki og Braga Íslenski boltinn Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Fleiri fréttir Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Sjá meira