Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari valdi í dag 20 manna æfingahóp fyrir HM sem fram fer í Katar í næsta mánuði.
Það sem kemur mest á óvart í vali Arons er að hornamaðurinn trausti, Þórir Ólafsson, er ekki í hópnum. Hans tími með landsliðinu virðist vera liðinn og yngri menn að taka við. Guðmundur Árni Ólafsson og Arnór Þór Gunnarsson eru í hægra horninu.
Ólafur Gústafsson er ekki í hópnum en hann gaf ekki kost á sér vegna meiðsla. Hann var því ekki einu sinni í 28 manna hópnum sem tilkynntur var fyrr í vikunni.
Tandri Már Konráðsson er tekinn inn í æfingahópinn en hann hefur spilað vel í Svíþjóð og færi nú tækifæri til þess að sanna sig. Hann er öflugur varnarmaður og fjarvera Ólafs hleypir honum væntanlega þarna inn.
Liðið kemur saman til æfinga 30. desember næstkomandi. Þá mun liðið leika tvo vináttulandsleiki við Þjóðverja í Laugardalshöll í byrjun janúar og miðasala er hafin á midi.is.
Liðið tekur svo þátt í æfingamóti í Danmörku 9.-11. janúar. Fyrsti leikur Íslands á HM er gegn Svíþjóð föstudaginn 16.janúar.
Hópurinn:
Markmenn:
Aron Rafn Eðvarðsson, Eskilstuna Guif
Björgvin Páll Gústavsson, Die Bergische Handball Club
Aðrir leikmenn:
Alexander Petersson, Rhein-Neckar Löwen
Arnór Atlason, St. Raphael
Arnór Þór Gunnarsson, Die Bergische Handball Club
Aron Pálmarson, THW Kiel
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Nimes
Bjarki Már Gunnarsson, Aue
Guðjón Valur Sigurðsson, Barcelona
Guðmundur Árni Ólafsson, Mors Thy Handball
Gunnar Steinn Jónsson, Vfl Gummersbach
Kári Kristján Kristjánsson, Valur
Róbert Gunnarsson, PSG
Rúnar Kárason, TSV Hannover-Burgdorf
Sigurbergur Sveinsson, HC Erlangen
Snorri Steinn Guðjónsson, Sélestat Alsace HB
Stefán Rafn Sigurmannsson, Rhein-Neckar Löwen
Sverre Andreas Jakobsson, Akureyri
Tandri Konráðsson, Ricoh HK
Vignir Svavarsson, HC Midtjylland ApS
Þeir sem detta út úr 28 manna hópnum: Daníel Freyr Andrésson, Sveinbjörn Pétursson, Atli Ævar Ingólfsson, Bjarki Már Elísson, Björgvin Þór Hólmgeirsson, Ólafur Andrés Guðmundsson, Róbert Aron Hostert, Þórir Ólafsson.
Æfingahópur Arons tilbúinn | Þórir úti í kuldanum

Tengdar fréttir

Aron: Erfitt að segja Þóri tíðindin
Hinn leikreyndi og öflugi hornamaður, Þórir Ólafsson, er ekki í æfingahópi landsliðsins fyrir HM. Hann hefur reynst liðinu afar vel í gegnum tíðina. Það kemur því nokkuð á óvart að hann sé skilinn eftir.