Hanna Birna um ályktun VG: "Mér finnst þetta ótrúlega ómaklegt“ Aðalsteinn Kjartansson skrifar 19. október 2014 11:14 "Það er bara þeirra mál að nálgast þetta með þessum hætti,“ sagði Hanna Birna í þættinum Sprengisandi í dag. Vísir / Daníel „
Viltu að ég hafi einhverja sérstaka skoðun á því?“ spurði Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra aðspurð um ályktun flokksráðs Vinstri grænna frá í gær um að hún ætti að segja af sér. Þetta sagði hún í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni klukkan ellefu. „Það er bara þeirra mál að nálgast þetta með þessum hætti,“ sagði hún og taldi sig ekki þurfa að hafa mörg orð um ályktunina. „Mér finnst þetta ótrúlega ómaklegt fyrir utan það sem fram kemur í ályktuninni er ekki satt. […] Ég get ekki verið að hafa frekari skoðun á því.“ Þegar hún var svo spurð hvort að hún sé nær því núna en áður að segja af sér vegna lekamálsins svaraði hún: „Ég hef fyrir löngu sagt það og það hefur ekki breyst að ég er mjög hugsi í mörgu í stjórnmálunum.“ Hanna Birna sagðist fara yfir málið þegar rykið væri sest. Hún ítrekaði að hún teldi málið í grunnin vera mjög ljótan pólitískan leik. „Sú skoðun hefur ekki breyst,“ sagði hún. Flokksráðsfundur Vinstri grænna krafðist þess í ályktun að Hanna Birna segi af sér embætti, meðal annars fyrir að hafa sagt Alþingi ósatt og afskipti hennar af rannsókn lekamálsins. Hægt er að hlusta á brot úr þættinum þar sem Hanna Birna er spurð út í ályktunina í spilaranum efst í fréttinni.
Alþingi Mest lesið Egill Þór er látinn Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Brást of harkalega við dyraati Innlent Flugferðum aflýst Innlent Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Innlent Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman Innlent Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Veður Hvalveiðilögin barn síns tíma Innlent „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Innlent Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Erlent Fleiri fréttir Segir ríkisstjórnarsáttmálana keimlíka Eitt Egilsstaðaflug en annars öllu aflýst Hvalveiðilögin barn síns tíma Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Sigurður Ingi segir áberandi glufur í sáttmálanum Endurskoða lög um hvalveiðar á kjörtímabilinu Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman „Skítaveður á aðfangadagskvöld og jóladag“ Óveður um jólin og Inga tók lagið á fyrsta fundi ríkisstjórnar Brást of harkalega við dyraati Inga tók jólalag á fyrsta fundi Berglind nýr dómandi við Endurupptökudóm Flugferðum aflýst Vegur að Patreksfirði lokaður vegna snjóflóðs Egill Þór er látinn Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Flæddi inn í hús á Arnarnesi Ný ríkisstjórn fundar í dag „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Missti stjórn á bílnum og endaði inni í garði Lyklaskipti í máli og myndum: „Þetta er voldugur lykill“ Hvít jól, gular viðvaranir og varasamt ferðaveður Nýr flugvöllur opnar nýjar dyr fyrir Suður-Grænland Tvö tröllvaxin mál og sækja eigi tekjurnar í fiskinn „Heimsins furðulegasti fiskur“ afhentur í fjármálaráðuneytinu Kirkjutröppurnar opnaðar að nýju og hiti í hverju þrepi Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Umferðartafir vegna bílveltu á Mýrum Lyklaskipti og afmæli elsta Íslendingsins Segir Helga Magnús óhæfan til að gegna embættinu Sjá meira