„Ég slapp því ég er stór og þungur en konan var ákærð því hún er léttari" Kjartan Atli Kjartansson skrifar 28. apríl 2014 13:17 Hér til vinstri má sjá hjónin umkringd lögreglu. Til hægri má sjá lögregluþjóna bera Lárus - áður en þeir gáfust upp. „
Við vorum alveg jafn brotleg, munurinn var bara sá að lögreglumennirnir gáfust upp að bera mig inn í bíl því ég er stór og þungur,“ segir Lárus Vilhjálmsson um ástæður þess að kona hans, Ragnhildur Jónsdóttir, var ákærð í Gálgahrauns-málinu svokallaða en ekki hann. Þau hjónin voru bæði handtekin þann 21. október síðastliðinn fyrir að ólhýðnast lögreglu þegar þau mótmæltu lagningu nýs Álftanesvegar gegnum Gálgahraun og Garðahraun. Þegar ákæra í málinu var birt, í desember í fyrra, vakti það mikla athygli hjónanna að aðeins Ragnhildur fékk ákæru – en Lárus slapp. Ástæðan, að mati þeirra, er einföld. „Ég slapp útaf því að ég er stór og þungur en konan var kærð því hún er léttari. Lögreglumennirnir gáfust upp við að bera mig inn í lögreglubíl og aðeins þeir sem voru settir inn í lögreglubílinn fengu ákæru. Við vorum alveg jafn brotleg. Við vorum tekin á sama stað og höguðum okkur nákvæmlega eins. Eini munurinn er stærðin á okkur,“ útskýrir Lárus. Vísir hefur rætt við fleiri sem voru viðstaddir þennan atburð sem staðfesta þessa frásögn Lárusar. Ekki náðist í aðila innan lögreglunnar sem vill tjá sig um málið.Krafa um frávísun Alls voru níu manns ákærðir fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu. Enn liggur frávísunarkrafa þeirra fyrir dómi. „Upphaflega fengum við sent sektarboð vegna handtökunnar. En við tókum þann pól í hæðina að svara því ekki, enda fannst okkur við vera í rétti og við hefðum ekki gerst brotleg,“ segir Lárus. Hann segir að um tuttugu fimm manns hafi fengið sektarboðið.Hér má sjá hjónin umkringd lögreglumönnum.Vísir/aðsentVar í hrauninu sem barnLárus var handtekinn tvisvar sama daginn og því vekur það enn frekari athygli hans, að eiginkona hans hafi verið ákærð en hann sloppið. Hún var eingöngu handtekinn einu sinni. Lárus segist hafa viljað vernda Gálgahraun og Garðahraun fyrir börn sín og barnabörn. „Ég ólst upp í Norðurbænum svokallaða í Hafnarfirði. Ég lék mér mikið í þessu hrauni sem barn. Okkur hjónunum langar að vernda þetta landsvæði svo kynslóðir framtíðarinnar geti líka notið þess.“
Tengdar fréttir Málsmeðferð í Gálgahraunsmáli í samræmi við lög "Lögin gera nú bara beinlínis ráð fyrir því að lögreglustjórar sem fara með rannsókn mála fari jafnframt með ákæruvald í þeim,“ segir Jón H.B. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 29. janúar 2014 14:49 Gálgahraun Eftir að hafa fylgst með því ónauðsynlega hervirki sem framið er þessa daga í Gálgahrauni verður mér æ oftar hugsað til þriggja frumherja náttúruverndar á Íslandi. 12. desember 2013 06:00 Íbúar í hættu í sprengingu við Gálgahraun Steinum rigndi yfir íbúðarhverfi við Álftanesveg í gær þegar sprengt var fyrir nýju vegstæði í Garðahrauni. 21. mars 2014 15:11 Hraunavinir funduðu með bæjarstjóra Garðabæjar "Það gerðist nú ekki mikið,“ segir Reynir Ingibjartsson, einn af forsvarsmönnum Hraunavina sem fóru á fund bæjarstjóra Garðabæjar, Gunnars Einarssonar, í ráðhúsi Garðabæjar í gær. 29. október 2013 09:00 „Skylda okkar að vernda íslenska náttúru og skila henni heilli til framtíðarkynslóða“ Í kvöld fara fram tónleikarnir, Stopp – Gætum garðsins, í Hörpunni þar sem fjöldinn allur af listamönnum mun koma fram. 18. mars 2014 12:13 Handtaka í Gálgahrauni 27. desember 2013 07:00 Fleiri andvígir lagningu vegar um Gálgahraun en hlynntir 42,4% eru andvíg veginum, 32,6% hvorki hlynnt né andvíg og 25,1% hlynnt vegalagningunni. 29. október 2013 14:40 "Augljóst dæmi um óhóflegar aðgerðir og valdahroka" Níu manns hafa verið ákærðir fyrir að óhlýðnast lögreglu við mótmæli í Gálgahrauni þann 21. október síðastliðinn. 25. janúar 2014 13:30 Minnir meira á lögregluríki en nútíma réttarríki Ákærðu þekkja saksóknarann í Gálgahraunsmálinu sem manninn sem sást stýra lögregluaðgerðum í hrauninu, daginn sem fólkið var handtekið, flutt af vettvangi og læst í fangaklefa. 29. janúar 2014 11:52 Krefja Hönnu Birnu um gögn vegna eyðileggingar í Gálgahrauni Hraunavinir og önnur náttúruverndarsamtök krefjast þess að fá afhent öll gögn er vara samskipti ráðuneytsins við Vegagerðina, lögreglu og verktaka vegna hinnar umfangsmiklu lögregluaðgerðar sem fram fór við Gálgahraun 1. nóvember 2013 07:45 Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Vaktin: Totur farnar að teygja sig til norðurs Innlent Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Innlent Segir íbúafundinn ekki hafa verið nægilega upplýsandi Innlent „Allt athafnasvæði Bláa lónsins er innan varnargarða“ Innlent Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Innlent Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Erlent Boða verkföll í tíu leikskólum í desember Innlent Fleiri fréttir Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Rafmagnsmastur í hættu vegna hraunflæðis Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Boða verkföll í tíu leikskólum í desember Í beinni frá gosstöðvum, undrun á vegferð seðlabankans og lokasprettur Atburðarás gærdagsins í myndum Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Virkni í þremur gígum og mest í miðjunni Mikill meirihluti vill ekki sjá sjókvíaeldi í Seyðisfirði Segir íbúafundinn ekki hafa verið nægilega upplýsandi FA klagar Willum Þór til umboðsmanns Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Bílar og byggingariðnaður losar mest í Reykjavík „Allt athafnasvæði Bláa lónsins er innan varnargarða“ Rokk og ról í Rockville holunni frestast fram í janúar Framsókn með þriggja prósenta fylgi í borginni Gist í um tuttugu húsum í Grindavík Njarðvíkuræðin heldur sem stendur og vaxtakjörin útskýrð á mannamáli Útkall vegna reyks við Borgarholtsbraut Ekki þörf enn á að stækka varnargarða við Bláa lónið Bein útsending: Heilbrigðisstarfsfólk grillar frambjóðendur Meirihluti styður verkfallsaðgerðir kennara Jafnast ekki út að vera með annan fótinn í hrauni og hinn í ís Stöðug virkni í nótt og og litlar breytingar Hótaði heimilismönnum með skærum Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Funda áfram hjá sáttasemjara á morgun Sjá meira
Málsmeðferð í Gálgahraunsmáli í samræmi við lög "Lögin gera nú bara beinlínis ráð fyrir því að lögreglustjórar sem fara með rannsókn mála fari jafnframt með ákæruvald í þeim,“ segir Jón H.B. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 29. janúar 2014 14:49
Gálgahraun Eftir að hafa fylgst með því ónauðsynlega hervirki sem framið er þessa daga í Gálgahrauni verður mér æ oftar hugsað til þriggja frumherja náttúruverndar á Íslandi. 12. desember 2013 06:00
Íbúar í hættu í sprengingu við Gálgahraun Steinum rigndi yfir íbúðarhverfi við Álftanesveg í gær þegar sprengt var fyrir nýju vegstæði í Garðahrauni. 21. mars 2014 15:11
Hraunavinir funduðu með bæjarstjóra Garðabæjar "Það gerðist nú ekki mikið,“ segir Reynir Ingibjartsson, einn af forsvarsmönnum Hraunavina sem fóru á fund bæjarstjóra Garðabæjar, Gunnars Einarssonar, í ráðhúsi Garðabæjar í gær. 29. október 2013 09:00
„Skylda okkar að vernda íslenska náttúru og skila henni heilli til framtíðarkynslóða“ Í kvöld fara fram tónleikarnir, Stopp – Gætum garðsins, í Hörpunni þar sem fjöldinn allur af listamönnum mun koma fram. 18. mars 2014 12:13
Fleiri andvígir lagningu vegar um Gálgahraun en hlynntir 42,4% eru andvíg veginum, 32,6% hvorki hlynnt né andvíg og 25,1% hlynnt vegalagningunni. 29. október 2013 14:40
"Augljóst dæmi um óhóflegar aðgerðir og valdahroka" Níu manns hafa verið ákærðir fyrir að óhlýðnast lögreglu við mótmæli í Gálgahrauni þann 21. október síðastliðinn. 25. janúar 2014 13:30
Minnir meira á lögregluríki en nútíma réttarríki Ákærðu þekkja saksóknarann í Gálgahraunsmálinu sem manninn sem sást stýra lögregluaðgerðum í hrauninu, daginn sem fólkið var handtekið, flutt af vettvangi og læst í fangaklefa. 29. janúar 2014 11:52
Krefja Hönnu Birnu um gögn vegna eyðileggingar í Gálgahrauni Hraunavinir og önnur náttúruverndarsamtök krefjast þess að fá afhent öll gögn er vara samskipti ráðuneytsins við Vegagerðina, lögreglu og verktaka vegna hinnar umfangsmiklu lögregluaðgerðar sem fram fór við Gálgahraun 1. nóvember 2013 07:45