Alþjóðaflugið enn opið

Gosið er talið lítið enn sem komið er og ekki hefur verið talin ástæða til að rýma flughelgina enn sem komið er samkvæmt Melissu Anne Pfeffe, sérfræðingi á sviði ösku- og vefnadreifingar hjá Veðurstofunni.
Click here for an English version.
Tengdar fréttir

Samhæfingarstöð Almannavarna kallar fólk á vakt
Samhhæfingarstöð Almannavarna var með lágmarksmönnun í morgun en hefur nú bætt starfsfólki á vaktina.

Aukin skjálftavirkni við Bárðarbungu
Skjálftavirkni við Bárðarbungu hefur verið að aukast í morgun og hefur aukinn órói komið fram á mælum Veðurstofu Íslands undanfarna klukkustund eða svo. Ekki sjást merki um að kvika sé á leið til yfirborðs. Skjálftarnir eru flestir á 5-10 km dýpi.

Fólk í grennd við gosstöðvarnar hvatt til að fylgjast vel með fréttum
Búið er að loka Jökulsárgljúfrum og hafin rýming ferðamanna þaðan sem og af Dettifosssvæðinu í ljósi þess að gos er hafið undir sporði Dyngjujökuls. Í tilkynningu frá Almannavörnum segir að að svo stöddu sé ekki talin ástæða til að rýma íbúa- og frístundabyggð í Kelduhverfi, Öxarfirði og Núpasveit.

Hraungos hafið undir Dyngjujökli
Talið er að lítið hraungos sér hafið undir Dyngjujökli. Talið er að um 150-400 metra þykkur ís sé yfir svæðinu. Litakóði fyrir flug hefur verið færður upp færður úr appelsínugulu í rautt.