Formúla 1

Mercedes menn fljótastir á föstudagsæfingum

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Rosberg á æfingum í morgun
Rosberg á æfingum í morgun Vísir/Getty
Bretinn Lewis Hamilton setti hraðasta hring á fyrri æfingunni í nótt á Mercedes bíl sínum. Hann varð fjórði á seinni æfingunni á Sepang brautinni í Malasíu í morgun.

Nico Rosberg varð þriðji á Mercedes bíl sínum á fyrri æfingunni en fljótastur á seinni æfingunni. Rosberg er spenntur fyrir keppninni á sunnudag og vill gjarnan reyna að ná öðrum sigri sem fyrst. Hann vann fyrstu keppni tímabilsins í Ástralíu fyrir tvemur vikum.

Kimi Raikkonen varð annar á Ferrari bíl sínum á fyrri æfingunni. Raikkonen var greinilega mikið ánægðari með uppstillingu bílsins. Hann var alls ekki ánægður með bílinn í Ástralíu. Raikkonen varð aftur annar á seinni æfingunni aðeins 0,035 sekúndum á eftir Rosberg.

Fernando Alonso á Ferrari, náði einungis ellefta besta tíma á fyrri æfingunni, hann náði svo sjötta besta hring seinni æfingarinnar.

Red Bull sýndi góða takta og svo virðist sem vandamál vetrarins séu að mestu leyst og þeir áttu mjög góðan dag. Sebastian Vettel varð þriðji á seinni æfingunni og Daniel Ricciardo átti sjöunda besta tíma seinni æfingarinnar.

Massa gengur aftur á þjónustusvæðið eftir að hafa endað utan brautar.Vísir/Getty
Þó nokkrir bílar fóru útaf brautinni í byrjun æfingarinnar, brautin var skítug og lítið grip. Meðal þeirra sem fóru út af voru Lewis Hamilton, Fernando Alonso og Felipe Massa.

Lotus á enn í vandræðum, liðið kláraði samanlagt 6 hringi á fyrri æfingunni, minnst allra liða. Hvorki Pastor MaldonadoRomain Grosjean settu tíma. Grosjean náði að setja tíma á seinni æfingunni og náði sautjánda besta tíma. Maldonado fór ekki hring á seinni æfingunni.

Tímatakan er á dagskrá á Stöð 2 Sport klukkan 7:50 í fyrramálið og keppnin sjálf klukkan 7:30 á sunnudagsmorgun.


Tengdar fréttir

Renault-vélar í vanda í Malasíu

Fjórir bílar með Renault-vélar hættu keppni í Ástralíu vegna vélabilunar. Renault trúir því að fyrirtækið sé að ná árangri í átt að meiri áreiðanleika.

Rosberg sigraði í Ástralíu - Vettel kláraði ekki

Nico Rosberg á Mercedes sigraði fyrstu keppni timabilsins í viðburðaríkum kappakstri í Ástralíu í morgun. Daniel Ricciardo á Red Bull var annar og nýliðinn Kevin Magnussen á McLaren varð þriðji.

Framfarir Red Bull hughreysta Vettel

Þrátt fyrir skelfilega helgi í Ástralíu þar sem fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel hóf keppni í 13. sæti horfir nú til betri vegar.

Mercedes á að vinna tvöfalt

Toto Wolff, framkvæmdastjóri Formúlu 1 liðs Mercedes segir að liðið verði að halda forskotinu sem það hefur á keppinautana. Liðið sýndi að það hefur forskot á önnur lið í Ástralíu.

Samúðarskilaboð í Malasíu

Ætlast er til að ökumenn votti samúð sína með aðstandendum þeirra 239 farþega sem taldir eru hafa farist með flugi MH370. Skilaboð í þá veru verða á hjálmi hvers ökumanns og bíl. Einnig verður einnar mínútu þögn fyrir keppnina á sunnudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×