Heilsa

Styrktaræfingar fyrir fætur og axlir teknar fyrir

Í þessum sjötta þætti af EA Fitness fer Elma í gegnum seinni fótaæfinguna ásamt Team EA Fitness meðlimunum Dagnýju og Sofiu. Anton kíkir á Magnús Samúelsson og tekur spjall og æfingu með þessum gríðarlega öfluga vaxtarræktarkappa. Einnig er Einarshornið alltaf á sýnum stað.

Í EA Fitness þáttaröðinni fáum við að fylgja þjálfurunum Elmu og Antoni eftir en þau fjalla um líkamsrækt, næringu og heilbrigðan lífsstíl.

Elma Grettisdóttir er með menntun frá World Class-skólanum og í Stott Pilates. Hún hefur unnið sem einkaþjálfari í mörg ár og er þjálfunin ekki bara vinna fyrir henni heldur einnig áhugamál. Hún býður uppá einkaþjálfun í World Class sem og fjarþjálfun.

Anton Rúnarsson hefur unnið sem einka- og fjarþjálfari í meira en tíu ár. „Að aðstoða fólk við að koma sér í form og læra að halda sér í formi er það sem ég geri, megrun er ekki í mínum orðaforða heldur lífsstíll. Að endurstilla hugarfarið til að lifa heilbrigðum lífsstíl,“ segir Anton. Hann er menntaður einkaþjálfari frá World Class-skólanum.

Hér að neðan má sjá sjötta þáttinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.