Formúla 1

Marcus Ericsson til Sauber

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Ericsson fer til Sauber fyrir næsta tímabil.
Ericsson fer til Sauber fyrir næsta tímabil. Vísir/Getty
Sænski ökuþórinn Marcus Ericsson hefur samið við Sauber liðið í Formúlu 1. Hann ók áður fyrir Caterham liðið sem nýlega lýsti yfir gjaldþroti.

Hinn 24 ára Ericsson hóf ferill sinn í Formúlu 1 á þessu tímabili. Hann hefur lýst samningnum sem bestu jólagjöf sem hann hefur fengið.

„Eftir afar erfiða viku, fékk ég skyndilega bestu snemmbúnu jólagjöf sem ég hef fengið. Sauber liðið hefur ákveðið að treysta á mig á næsta ári sem fyllir mig stolti þar sem Sauber er frægt fyrir að vera eitt besta liðið fyrir unga ökumenn til að sækja sér reynslu. Þetta verður mikil áskorun,“ sagði Ericsson á heimasíðu liðsins.

Samningurinn eykur á óvissu núverandi ökumanna liðsins, Esteban Gutierrez og Adrian Sutil hafa báðir verið taldir á förum frá liðinu.

Liðsstjóri Sauber, Monisha Katleborn telur að enn eigi eftir að koma mikið frá Ericsson. „Við erum sannfærð um að Marcus fylgi aukin meðbyr,“ segir Katleborn.

Samkvæmt óstaðfestum heimildum verður liðsfélagi Ericsson hjá Sauber á næsta ári Giedo van der Garde, núverandi þróunarökumaður liðsins.

Fjárstyrkur frá styrktaraðilum Ericsson virðast ráða miklu um saminginn. Slíkir hagsmunir virðast því miður oft hafa lokaorðið í Formúlu 1 þessi misserin á kostnað hæfileikaríkra ökumanna. Að Marcus Ericsson algjörlega ólöstuðum.


Tengdar fréttir

Hulkenberg áfram hjá Force India

Nico Hulkenberg verður áfram ökumaður Force India liðsins í formúlu 1 á næsta tímabili. Staðfesting kom frá liðinu og ökumanninum í gær.

Caterham má missa af tveimur keppnum

Bernie Ecclestone er tilbúinn að leyfa Caterham liðinu að sleppa tveimur næstu keppnum til að einbeita sér að því að finna kaupendur.

Nico Rosberg á ráspól í Bandaríkjunum

Nico Rosberg á Mercedes náði ráspól eftir gríðar skemmtilega tímatöku í Austin, Texas. Liðsfélagi hans, Lewis Hamilton varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji.

Stóru liðin ætla að skaffa litlu liðunum bíla

Bernie Ecclestone segir að samningur sem gerður hefur verið við stærri liðin í Formúlu 1 gæti leitt til þess að þau skaffi minni liðunum bíla. Þetta gæti komið til ef allt stefnir í mikla fækkun keppnisliða.

Bræður vilja bjarga Marussia

Bresk-indverskir bræður, Baljinder Sohi og Sonny Kaushal eru nú í samningaviðræðum við forsvarsmenn Marussia. Þeim virðist vera full alvara í að reyna að bjarga liðinu.

Marussia missir af næstu keppni

Bernie Ecclestone, einráður formúlu 1 hefur staðfest að Marussia muni, ásamt Caterham liðinu missa af bandaríska kappakstrinum næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×