Golf

Lagt til að sameina Kjöl og Bakkakot

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/GKJ
Líklegt er að nýr golfklúbbur verði stofnaður í Mosfellsbæ í lok ársins eftir saminingu Golfklúbbsins Kjalar og Golfklúbbs Bakkakots í Mosfellsdal.

Þetta kom fram í yfirlýsingu sem formenn klúbbana sendu frá sér og birtist á kylfingi.is. Stjórnir beggja hafa komist að samkomulagi um sameiningu en næsta skref er að boða til félagsfundar þar sem hugmyndirnar um sameininguna verða kynntar.

Yfirlýsinguna má lesa hér fyrir neðan:

„Klúbbarnir munu í framhaldinu boða formlega til þriggja funda með félagsmönnum sínum til að fara yfir og svo kjósa um sameiningu klúbbanna. Meðlimir klúbbanna munu fá send kynningargögn vegna sameiningarinnar í byrjun nóvember.

Í framhaldinu munu klúbbarnir boða kynningarfund um miðjan nóvember mánuð þar sem hægt verður að svara spurningum félagsmanna varðandi málið. Kosningafundir um sameiningu verða boðaðir í framhaldinu og þeim lokið áður en aðalfundir klúbbana fara fram í byrjun desember.

Það er von beggja stjórna að málið fái brautargengi meðal félagsmanna enda telja stjórnir klúbbanna að í sameiningu klúbbanna verði til nýr og sterkur golfklúbbur sem verði í góðri stöðu til að þjónusta félagsmenn sína og gesti með fjölbreyttum golfvallarsvæðum og góðu félagsstarfi. Mikil áhersla verður lögð á að halda eftir öllu því besta sem báðir klúbbar hafa byggt upp en á sama tíma að horfa til framtíðar með metnaðarfulla uppbyggingu í huga sem fer í gang strax á nýju ári.

Fyrir hönd stjórnar GKJ,

Guðjón Karl Þórisson, formaður

Fyrir hönd stjórnar GOB,

Gunnar Ingi Björnsson, formaður“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×