Lífið

Eiga von á þriðja barninu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian og kærasti hennar, Scott Disick, eiga von á sínu þriðja barni samkvæmt heimildum tímaritsins Us Weekly.

„Hún er aðeins komin nokkra mánuði á leið,“ segir heimildarmaður tímaritsins. Annar bætir við að barnið hafi verið planað.

Kourtney og Scott eiga fyrir soninn Mason, 4 ára og dótturina Penelope, 23ja mánaða.

Kourtney grínaðist einmitt með það í þættinum Keeping Up With the Kardashians árið 2012 að hún væri hætt að nota getnaðarvarnir.

„Ég þarf að sjá hvernig þetta verður með tvö börn en lífið snýst um að eignast börn. Ég ætla ekki á pilluna. Ég trúi ekki á hana lengur.“

Þriðji heimildarmaður Us Weekly segir að von sé á nýjasta fjölskyldumeðliminum í desember.

Kourtney er systir Khloe og Kim Kardashian en sú síðarnefnda gekk að eiga rapparann Kanye West þann 24. maí síðastliðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×