Golf

Tiger ekki með í Ryder-bikarnum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Tiger Woods meiddist við þetta högg á annari braut á Firestone CC-vellinum.
Tiger Woods meiddist við þetta högg á annari braut á Firestone CC-vellinum. vísir/getty
Tom Watson, fyrirliði Ryder-liðs Bandaríkjanna, þarf ekki lengur að hugsa um að velja Tiger Woods í liðið þrátt fyrir arfadapra frammistöðu hans á árinu.

Tiger gaf það út í dag að hann gefur ekki kost á sér í Ryder-bikarinn vegna meiðsla, en hann meiddist enn á ný á WCG Bridgestone-mótinu fyrir tveimur vikum.

„Þó ég þakki Tom Watson svo sannarlega fyrir að íhuga að velja mig, þá kemur ekki til greina að ég geti verið með,“ segir Tiger.

„Læknarnir segja að bakvöðvarnir verða að fá tíma til jafna sig og þeir ráðlögðu mér að hvorki æfa né spila. Ég er mjög svekktur með að geta ekki verið með því bandaríska liðið og Ryder-bikarinn skipta mig miklu máli.“

Fyrstu níu í bandaríska liðið eru klárir samkvæmt stigalista bandaríska liðsins, en Tom Watson velur svo þrjá sem fyrirliði. Hann hefur verið undir mikilli pressu að velja Tiger, en er nú laus við hana.

„Tiger Woods gerir bandaríska liðinu mikinn greiða með þessu. Fyrirliðinn Tom Watson þarf nú ekki að taka þessa erfiðu ákvörðun sem hefði getað orðið slæm fyrir Bandaríkin,“ sagði IainCarter golfsérfræðingur BBC eftir tilkynningu Tigers.

Tiger Woods hefur sjö sinnum verið með í Ryder-bikarnum, en aðeins verið í sigurliði einu sinni.

Hann hefur ekki unnið eitt mót á árinu og komst ekki í gegnum niðurskurðinn á PGA-meistaramótinu um síðustu helgi, en það var aðeins í fjórða skiptið á ferlinum sem hann komst ekki í gegnum niðurskurð á risamóti.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×