Lífið

Þú verður of feit í grímubúning ef þú borðar ekki Subway

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ný auglýsing frá skyndibitastaðnum Subway hefur vakið mikinn usla vestan hafs og ekki að ástæðulausu.

Í auglýsingunni sést kona dæma vinnufélaga sína fyrir að borða hamborgara í staðinn fyrir Subway-bát. Segir hún að þeir sem borði hamborgara verði feitir og ekki kynþokkafullir í grímubúningum, en nú styttist óðum í Hrekkjavökuna.

Konan er síðan með sýnikennslu og bregður sér í nokkra búninga sem álitnir eru kynþokkafullir til að sanna mál sitt.

Hægt er að horfa á auglýsinguna hér fyrir neðan og dæmi nú hver fyrir sig hvort hún eigi rétt á sér eður ei.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×