Lífið

Klámsunnudagar í kirkju

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kirkja í Virginíu ætlar að halda sérstaka klámsunnudaga, messu með fyrrverandi klámstjörnu. Íbúar í nágrenni kirkjunnar eru undrandi yfir þessu eins og sagt er frá á fréttasíðunni Huffington Post.

Klámsunnudagur verður messa gegn klámi þar sem fyrrverandi klámmyndastjarnan Shelley Lubben talar um dökkar hliðar bransans.

„Ég hef upplifað dauðahaldið sem klám getur haft á lífi manns,“ skrifar presturinn Joel Brown á bloggsíðu sinni.

„Klám tók nánast allt frá mér í upphafi hjónabands míns. En Guð, hans miskunn og kraftur færði mig frá lygunum sem lágu að baki fíkn minni,“ bætir hann við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×