Lífið

Vill fanga fegurð fólks með Downs-heilkenni

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ljósmyndarinn Linda Dajana Krüger hefur afhjúpað nýja ljósmyndaseríu sem heitir Real Prettiness. Fyrirsætur hennar í seríunni eru allar með Downs-heilkenni.

„Mig langar að beina athyglinni að Downs-heilkenni og fólki sem er með það. Ég vil að fólk nálgist þetta fólk og sjái hve fallegt, hamingjusamt, fyndið og opið það er. Þessir einstaklingar klæddu sig upp eins og þeir vildu vera á þessum myndum. Þeir eru alveg eins og allir aðrir,“ segir Linda í samtali við tímaritið Cosmopolitan

Linda hefur verið gagnrýnd fyrir að mynda þessa einstaklinga í ýktum klæðum og með ýkta förðun.

„Ég vildi að fyrirsæturnar væru hamingjusamar. Kannski finnst sumum málningin of mikil eða fötin of ýkt en mér finnst það lýsa þröngsýni. Af hverju má fólk með Downs-heilkenni ekki vera ýkt eða mjög mikið málað?“ segir Linda.

Nokkrar myndir úr seríunni má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×