Lífið

Ný stikla úr Scandal

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ný stikla fyrir sjónvarpsþættina Scandal er komin á netið en nýja serían verður frumsýnd fimmtudaginn 25. september vestan hafs.

Lítið kemur í ljós í stiklunni nema það að Olivia Pope, sem leikin er af Kerry Washington, er stungin af á sólarströnd og vinnustaður hennar og heimili eins og draugabær.

Í stiklunni sést Bandaríkjaforseti, Fitzgerald Grant, hringja í ástkonu sína en fær ekkert svar.

Shonda Rhimes, konan á bak við Scandal, hefur gefið það upp að nýja serían einbeiti sér að því að skoða aðalsöguhetjurnar betur og bíða margir spenntir eftir seríunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×